Fasteignaleitin
Opið hús:17. mars kl 17:15-18:00
Skráð 14. mars 2025
Deila eign
Deila

Eddufell 6 (601)

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Breiðholt-111
138.3 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
109.900.000 kr.
Fermetraverð
794.649 kr./m2
Fasteignamat
33.000.000 kr.
Brunabótamat
0 kr.
Mynd af Lilja Hrafnberg
Lilja Hrafnberg
Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali
Byggt 1981
Þvottahús
Lyfta
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2531292
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
6
Hæðir í húsi
6
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Nýtt
Raflagnir
Nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
Nýtt
Þak
Nýtt
Svalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Matsstig
4 - Fokheld bygging
***SÉRLEGA GLÆSILEG ÞAKÍBÚÐ (PENTHOUSE), FRÁBÆRT ÚTSÝNI, TVENNAR SVALIR, HJÓNASVÍTA MEÐ SÉR BAÐHERBERGI OG FATAHERBERGI, SÉRSMÍÐAÐAR INNRÉTTINGAR, STEINN Á BORÐUM***

Gimli fasteignasala og Lilja Hrafnberg kynna: Glæsileg 4ra herbergja þakíbúð (penthouse) með frábæru útsýni í vönduðu nýju lyftuhúsi. Íbúðin afhendist fullbúin með gólfefnum í nóvember 2024. Eignin sem er í heildina skráð 138,3 fm skiptist í eldhús, stofu, og borðstofu sem flæða saman í opnu alrými með útgengi á skjólgóðar svalir. Hjónasvítu með sér baðherbergi, fataherbergi og útgengi á svalir. Tvö rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og 8,6 fm geymslu. Vel hefur verið hugað að allri hönnun og efnisvali, vandaðar innréttingar sem eru sérsmíðaðar frá viðurkenndum framleiðanda. Eldhústæki frá Siemens. Fallegur Dekton steinn frá REIN í eldhúsi og á baðherbergjum. Hvítar innihurðir frá Birgisson með svörtum húnum. Fallegt ljóst parket á alrými og svefnherbergjum. Baðherbergi og þvottahús flísalagt. 
Nánari upplýsngar veitir Lilja Hrafnberg  í síma 8206511, eða lilja@gimli.is


Forstofa: Sérsmíðaður fataskápur í ljósum beige lit. Ljóst harðparket á gólfi.
Alrými; Eldhús/Stofa/Borðstofa: Íbúðin er mjög opin og björt, eldhús, stofa og borðstofa flæða vel saman í alrými með útgengi á skjólgóðar svalir. Sérsmíðaðuð eldhúsinnrétting frá viðurkenndum framleiðanda, UAB Koalos Medis (Litháen). Skápar í eldhúsi ná upp í loft og eru í ljósum beige lit. Efri skápar með viðaráferð. Mjúklokur á skúffum og skápahurðum. Dekton steinn frá REIN á borðum. Spanhelluborð, blástursofn, uppþvottavél og innbyggður ísskápur frá Siemens. Ljóst harðparket á gólfi.
Hjónasvíta: Afar rúmgóð með sér baðherbergi og fataherbergi. Útgengi út á svalir. Baðherbergi með flísalagðri "walk in" sturtu með glerþili. Vegghengt salerni, sérsmíðuð innrétting með Dekton steini frá REIN á borði og speglaskápur. Ljósar 60x60 flísar á gólfi og sturtu. Handklæðaofn. Parket á gólfi í hjónaherbergi og fataherbergi. 
Svefnherbergi #2: Er með sérsmíðuðum fataskápum í ljósum beige lit. Ljóst harðparket á gólfi.
Svefnherbergi #3: Er með sérsmíðuðum fataskápum í ljósum beige lit. Ljóst harðparket á gólfi.
Baðherbergi #2: Flísalögð "walk in" sturta með glerþili. Vegghengt salerni, sérsmíðuð innrétting með Dekton steini frá REIN á borði og speglaskápur. Ljósar 60x60 flísar á gólfi og sturtu. Handklæðaofn.
Þvottahús: Gert ráð fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð í innréttingu. Flísar á gólfi.
Geymsla: sérgeymsla á jarðhæð
Sameign: Hjóla- og vagnageymsla á jarðhæð. Djúpgámar á lóð.
Næg bílastæði eru við húsið. 

VÖNDUÐ EIGN ÞAÐ SEM RÍK ÁHERSLA HEFUR VERIÐ LÖGÐ Á FALLEGA HÖNNUN, EFNISVAL OG FRÁGANG.
STUTT Í ALLA ÞJÓNUSTU, S.S. GRUNNSKÓLA, FRAMHALDSSKÓLA, SUNDLAUG, LÍKAMSRÆKT OG VERSLANIR AF ÝMSU TAGI. SPENNANDI UPPBYGGING AÐ FARA AF STAÐ Í HVERFINU.

Eddufell 2-6 er vandað lyftuhús á 6 hæðum. Eignirnar sem eru 22 eru af ýmsum stærðum, allt frá stúdóíbúðum/vinnustofum til 4ra herbergja þakíbúða (Penthouse) með tvennum svölum.


Íbúð 301: 2ja herb: 57,0 fm. SELD
Íbúð 302: 3ja herb: 82,1 fm. Verð 75.900.000 
Íbúð 303: 3ja herb: 81,7 fm. Verð 75.600.000 
Íbúð 304: 3ja herb: 74,1 fm. Verð 69.700.000 
 
Íbúð 401: 2ja herb: 56,8 fm. SELD
Íbúð 402: 3ja herb: 85,8 fm. Verð 79.400.000 
Íbúð 403: 3ja herb: 83,0 fm. Verð 76.900.000 
Íbúð 404: 3ja herb: 74,1 fm. Verð 70.400.000 

Íbúð 501: 2ja herb: 56,7 fm. Verð 57.900.000 
Íbúð 502: 3ja herb: 80,7 fm. Verð 75.900.000 
Íbúð 503: 3ja herb: 81,7 fm. Verð 76.800.000 
Íbúð 504: 3ja herb: 74,5 fm. Verð 71.200.000 

Íbúð 601: 4ra herb: 138,3 fm. Verð 109.900.000 
Íbúð 602: 4ra herb: 154,8 fm. Verð 121.500.000 

Nánari upplýsingar veitir: Lilja Hrafnberg Viðskiptafræðingur/Löggiltur fasteignasali, í síma 8206511, tölvupóstur lilja@gimli.is 

Gimli fasteignasala hefur stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti á fimmta áratug og er ein af elstu starfandi fasteignasölum landsins, stofnuð árið 1982. Leiðarljós Gimli er heiðarleiki, traust og góð þjónusta. Gimli, gerir betur...
Gimli er staðsett á 2. hæð á Grensásvegi 13, 108 Reykjavík og á 2. hæð á Eyravegi 29, Selfoss.
Opnunartími frá kl. 10 -16 alla vikra daga, sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 2.700,- . Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Þar sem um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eddufell 6
Skoða eignina Eddufell 6
Eddufell 6
111 Reykjavík
138.3 m2
Fjölbýlishús
423
795 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Skúlagata 40A
Bílskúr
60 ára og eldri
Skoða eignina Skúlagata 40A
Skúlagata 40A
101 Reykjavík
159.4 m2
Fjölbýlishús
422
752 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Arkarvogur 12 (207)
Bílastæði
Opið hús:16. mars kl 12:00-12:30
Arkarvogur 12 (207)
104 Reykjavík
137.5 m2
Fjölbýlishús
524
748 þ.kr./m2
102.900.000 kr.
Skoða eignina Smyrilshlíð 9
Bílastæði
Opið hús:17. mars kl 12:00-12:30
Skoða eignina Smyrilshlíð 9
Smyrilshlíð 9
102 Reykjavík
100.6 m2
Fjölbýlishús
312
1003 þ.kr./m2
100.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin