Miklaborg kynnir: Bjarta og vel skipulagða 2ja herbergja íbúð á 2. hæð með góðum suðursvölum að Stangarholti 7 105 Reykjavík. Frábær staðsetning á rólegum stað í göngufæri við miðbæ Reykjavíkur. Birt stærð samkvæmt fasteignaskrá er 44,9 fm en á jarðhæð er ca 4,5 fm geymsla sem er að öllum líkindum ekki inn í skráðum fermetrum. Eignin skiptist í anddyri, stofu, eldhús, svefnherbergi og baðherbergi með góðri þvottaaðstöðu.
Allar nánari upplýsingar veita
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is og Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is
***Eignin verður ekki sýnd fyrir opið hús***
Nánari lýsing
Gengið er inn í flísalagt anddyri. Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu rými með parketi á gólfi. Eldhús er með góðri vinnuaðstöðu og skápaplássi. Stofan er björt og með útgengi á svalir í suður. Svefnherbergi er með parket á gólfi og fataskáp. Baðherbergi er flísalagt með sturtuklefa, hvítri eldri innréttingu með handlaug, spegli og salerni. Þvottaaðstaða er í hálfopnu rými innaf baðherbergi með tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Snyrtileg lóð með hellulagðri stétt og malbikuðum sameiginlegum bílastæðum fyrir framan hús. Fyrir aftan hús er tyrfður bakgarður sem er afgirtur með trjágróðri við lóðarmörk.
Allar nánari upplýsingar veita
Stefán Jóhann Stefánsson löggiltur fasteignasali í síma 659-2634 eða stefan@miklaborg.is
Friðjón Örn Magnússon löggiltur fasteignasali í síma 692-2704 eða fridjon@miklaborg.is
Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
---|---|---|---|---|
105 | 67.1 | 52,9 | ||
105 | 49.4 | 51,9 | ||
105 | 46.1 | 49,9 | ||
105 | 58 | 52,9 | ||
105 | 59.5 | 53,9 |