Fasteignasalan TORG og Lilja Ragnarsdóttir lgf. kynna í einkasölu góða 3herbergja íbúð í viðhalds litlu húsi við Torfufell í Reykjavík.Íbúðin er.skráð hjá Þjóðskrá 79,9fm og er geymslan þar af 5,9fm.
Húsið er klætt að utan með áli og bárujárni og er því viðhaldslétt. 10 íbúðir eru í stigaganginum. Sameign er snyrtileg. Sér merkt bílastæði, svalalokun, stutt í alla almenna þjónustu, skóla og leikskóla.
Allar frekari upplýsingar veitir Lilja Ragnarsdóttir Fasteignasali, í síma 6630464, tölvupóstur lilja@fstorg.is.Nánari lýsing. Frá sameign er komið í rúmgott parket lagt hol sem tengir önnur rými íbúðarinnar..Góður fataskápur er í holinu og gólf er parketlagt.
Eldhús. Rúmgott, bjart eldhús með borðkrók, hvítri snyrtilegri innréttingu á tvo veggi með góðu skapaplássi, efriskáðar á einn vegg, flísar á milli skápa, Bakarofn neðan við borðplötu og helluborð ofan við bakarofn, tengi er fyrir uppþvottavél. Gólf er dúkalagt.
Baðherbergið er með hvítri innréttingu með handlaug, spegla skápum ofan við handlaug og hvítum háum skápum á vegg, baðkari og Tengi er fyrir þvottavél.Gólf er dúklagt.
Svefnherbergi 1 er rúmgott með góðum fatasksápum gólf er parketlagt.
Svefnherbergi 2 er með opnum fataskáp og gólf er parketlagt.
í sameign er sér 5,9 fm geymsla ásamt vagna og hjóla geymslu.
Niðurlag: Gott viðhalds létt fjölbýli á góðum stað í efra Breiðholti, húsið er klætt að utan með áli og bárujárni, sér merkt bílastæði
Stutt í alla almenna þjónustu, skóla, leikskóla og gönguleiðir í náttúruperlu Elliðaárdals.
Allar frekari upplýsingar veitir Lilja Ragnarsdóttir Fasteignasali, í síma 6630464, tölvupóstur lilja@fstorg.is.Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.
Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á