Fasteignaleitin
Skráð 11. nóv. 2026

Reykjarhólsvegur 14

SumarhúsNorðurland/Varmahlíð-561
50 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
27.000.000 kr.
Fermetraverð
540.000 kr./m2
Brunabótamat
26.600.000 kr.
Byggt 2006
Pallur
Heitur pottur
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
22971491
Húsgerð
Sumarhús
Inngangur
Tveir inngangar

Aldir fasteignir og Monika Hjálmtýsdóttir, lögg. fasteignasali – 823-2800 / monika@aldirfasteignir.is kynna:

Fallegt 50 fm heilsárs sumarhús við Reykjarhólsveg 14 í Varmahlíð. Bústaðurinn er í skjólsælu sumarbústaðarlandi fyrir ofan byggðina í Varmahlíð. (sjá kort aftast í myndaalbúmi). Húsið stendur nokkuð hátt á 4.500 fm leigulóð og þar af leiðandi er ágætis útsýni úr bústaðnum í dag. 

Bústaðurinn sem hefur fengið gott viðhald og talsverða endurnýjun, var byggður árið 2006 sem bjálkahús á steyptum þverbitum en hefur síðan verður klæddur og einangraður að utan með Canexel klæðningu. Góð afgirt verönd er við bústaðinn og heitur pottur, útgengi frá baðherbergi. Varmaskiptir er á heita vatninu og á ofnakerfinu og rennur affall af heita vatninu í pottinn. Falleg lýsing er umhverfis húsið með tímastillingu. 
Tvö rúmgóð svefnherbergi eru í húsinu. Nýleg eldhúsinnrétting með bakarofni, helluborði, gufugleypi og innbyggðri uppþvottavél. Húsgögnin eru einnig nýleg og fylgja með í kaupum, þ.á.m. þrjú rúm, flatskjár, ísskápur, þvottavél, vandað stækkanlegt borðstofuborð og sófi ásamt öðrum húsgögnum fyrir utan persónulega muni. 

✅ Fallegur og sjarmerandi 50 fm heilsárs sumarhús í Varmahlíð
✅ Húsið stendur á 4.500 fm leigulóð
✅ Afgirt verönd með heitum potti
✅ Góð nýting á rýmum og tvö góð svefnherbergi
✅ Stutt í þjónustu á borð við veitingasölu, verslun og sundlaug


Nánari lýsing
Forstofa: Harðparket á gólfi.
Svefnherbergi I: Innaf forstofu, rúmgott með tveimur einbreiðum rúmum og fataskáp, harðparket á gólfum.
Alrými: Með eldhúsi og stofu, harðparket á gólfi. Grár hornsófi, áfastur flatskjár á vegg, ísskápur, vandað borðstofuborð sem er stækkanlegt.
Eldhús: Nýleg grálit IKEA innrétting með bakarofni, helluborði, gufugleypi og innbyggðri uppþvottavél.
Svefnherbergi II: Innaf alrými, rúmgott, harðparket á gólfi. Gott tvíbreitt rúm. 
Baðherbergi: Með salerni, sturtuklefa og baðinnréttingu, harðparket á gólfi. Útgengi á pall þar sem heitur pottur er afgirtur. 
Lóð: Möl í heimreið, annars er lóðin að öðru leyti með villtum gróðri. 

Afhending
Eignin er tilbúin til afhendingar eftir samkomulagi.

Hafðu samband fyrir nánari upplýsingar og skoðun:
Monika Hjálmtýsdóttir, löggiltur fasteignasali og viðskiptafræðingur – 823-2800 / monika@aldirfasteignir.is 
Júlíus Jóhannsson, löggiltur fasteignasali - 823-2600 / jj@aldirfasteignir.is

 

Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Aldir fasteignir bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldir Fasteignir - Við leiðum þig heim
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Stuttárbotnar 18
Heitur pottur
Stuttárbotnar 18
320 Reykholt í Borgarfirði
58,5 m2
Sumarhús
3
597 þ.kr./m2
34.900.000 kr.
Skoða eignina Dagverðarnes 113
3D Sýn
Dagverðarnes 113
311 Borgarnes
62,6 m2
Sumarhús
312
735 þ.kr./m2
46.000.000 kr.
Skoða eignina Birkiskógar 6
Heitur pottur
d408efa5-928c-4af3-8f01-e444727b9704.jpg
Skoða eignina Birkiskógar 6
Birkiskógar 6
311 Borgarnes
54 m2
Sumarhús
413
554 þ.kr./m2
29.900.000 kr.
Skoða eignina Hólkot 13
Á einni hæð
Skoða eignina Hólkot 13
Hólkot 13
626 Ólafsfjörður
56,8 m2
Sumarhús
312
440 þ.kr./m2
25.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin