Fasteignaleitin
Skráð 10. sept. 2026

Haukahlíð 10 - íbúð 133

Nýbygging • FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Vatnsmýri-102
59.2 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
69.900.000 kr.
Fermetraverð
1.180.743 kr./m2
SG
Svan Gunnar Guðlaugsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2025
Jarðhæð
Svalir
Pallur
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2532588
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Nýtt í sölu - Haukahlíð 10, 102 Reykjavík - Íbúð 133. Íbúðin er staðsett í Hlíðarhorni, glæsilegri nýbyggingu á frábærum stað í miðbænum. Íbúðin verður afhent fljótlega.

S8-Sameign: Verð íbúðar miðað við 25% sameign er 52,425,000. S8 ehf. sem byggingaraðili heldur eftir 25% af íbúðinni í 10 ár skv. sameignarsamningi sem er undirritaður samtímis og kaupsamningur.

Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, hafðu samband við Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltan fasteignasala í síma 697 9300 eða Gabríel Mána Hallson löggiltan fasteignasala í síma 772 2661 eða gabriel@miklaborg.is.

ATH. Myndir í auglýsingu geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingarþema.

Á sölusíðu eignarinnar í eCASA færðu með rafrænum skilríkjum aðgang að söluyfirliti íbúðar og öðrum skjölum er varða eignina og getur jafnvel gert tilboð í íbúðina beint.

Skemmtileg og björt 2ja herbergja íbúð á 1. hæð. Íbúðin snýr inn í innri garð. Birt stærð er 59,2 fm þar af 6,3 fm geymsla í kjallara. Íbúðin skiptist í anddyri, eldhús og stofu í opnu rými með útgengi á pall, svefnherbergi og baðherbergi. Íbúðin afhendist fullbúin samkvæmt skilalýsingu með vönduðum sérsmíðuðum innréttingum, gæðarraftækjum, vönduðum blöndunartækjum og sterku og vönduðu gólfefni. Íbúðin er útbúin sér loftræsikerfi með varmaendurvinnslu. Innréttingarþema íbúðar er Mjöll 1.

Nánari lýsing: Í anddyri er góður fataskápur. Anddyri opnast inn í bjart og vel skipulagt alrými, eldhús og stofu, með gólfsíðum glugga og útgengi á tæplega 20 fm sérafnotareit í vestur. Ljós eldhúsinnrétting, hvítur quartz-steinn á borðum og krómuð blöndunartæki. Innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Rúmgott hjónaherbergi með góðum fataskápum. Baðherbergi með “walk-in” sturtu með hertu gleri, handklæðaofni og upphengdu salerni. Gráar steinflísar á gólfi og veggjum, hvít innrétting og speglaskápur. Krómuð blöndunartæki á baði. Afmörkuð aðstaða fyrir þvottavél og þurrkara á baði. Sérgeymsla íbúðar í kjallara er merkt 184 á teikningu. Í kjallara Hlíðarhorns eru sameiginlegar hjóla- og vagnageymslur og bílakjallari með fyrirkomulagi samnýtingar þar sem íbúar hafa forgang á leigu bílastæða.

Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, hafðu samband við Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltan fasteignasala í síma 697 9300 eða Gabríel Mána Hallson löggiltan fasteignasala í síma 772 2661 eða gabriel@miklaborg.is.

Hlíðarhorn er glæsileg 3-5 hæða nýbygging með 10 stigahúsum sem mynda hring um opinn innri garð. Í Hlíðarhorni verða 195 einstaklega vandaðar og fjölbreyttar íbúðir, 2-5 herbergi að stærð. Hver íbúð er með svölum, þaksvölum eða sérafnotareit í innri garði og hönnuð til að hámarka náttúrulega birtu og nýtingu fermetra. Íbúðirnar eru sérstaklega vandaðar í alla staði, hvað varðar hönnun, innréttingar og tæki. Einungis er unnið með bestu fáanlegu lausnir og efni og umhverfisvernd höfð að leiðarljósi. Hver íbúð hefur sérstæða loftræsingu með varmaendurvinnslu og lögð er sérstök áhersla á hljóðvist. Byggingin er staðsteypt, einangruð og klædd með mismunandi lituðum álklæðningum og við, með gluggum úr ál/við. Hlíðarhorn er miðsvæðis í Reykjavík, í póstnúmeri 102, á jaðri Hlíðahverfis og Þingholta, við fætur Öskjuhlíðar. Öll helsta þjónusta er því í göngu/hjólafæri, samgöngur, skólar, íþróttaaðstaða, iðandi mannlíf og stórir vinnustaðir.

Bílakjallari undir Hlíðarhorni er ekki hluti af sameign og er skv. deiliskipulagi “samnýttur”. Kjallarinn verður rekinn óhagnaðardrifinn af rekstrarfélagi. Ákveðnar íbúðir í Hlíðarhorni hafa fengið úthlutað sérmerktum bílastæðum með föstum leigusamningum. Kaupendur þeirra íbúða gerast aðilar að rekstrarfélagi bílakjallara samfara kaupum á íbúð og geta þannig haft áhrif á rekstur kjallarans til framtíðar.

Ef þú vilt fræðast meira um eignina og þær lausnir sem eru í boði, hafðu samband við Svan Gunnar Guðlaugsson löggiltan fasteignasala í síma 697 9300 eða Gabríel Mána Hallson löggiltan fasteignasala í síma 772 2661 eða gabriel@miklaborg.is.

Á heimasíðu verkefnissins, www.hlidarhorn.is, getur þú skoðað allar þær fjölbreyttu íbúðir sem eru og verða til sölu í Hlíðarhorni, á þessum frábæra stað í miðbænum.

Frekari upplýsingar um íbúðina og Hlíðarhorn er einnig að finna í skilalýsingu seljanda á heimasíðu Hlíðarhorns (sjá tengil að ofan), ásamt upplýsingum er varða hönnun og byggingu.

ATH: Kaupendur munu greiða skipulagsgjald þegar það verður innheimt sem er 0,3 % af endanlegu brunabótamati.

ATH: Fasteignasalan Hlíðarhorn er í eigu byggingaraðila og eiganda fasteignarinnar, S8 ehf. Myndir úr íbúð geta verið úr annarri íbúð með sama innréttingaþema.

Gjöld sem kaupandi þarf einnig að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi; fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 3.800 kr. af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (16)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skipholt 70
Efsta hæð
Skoða eignina Skipholt 70
Skipholt 70
105 Reykjavík
56 m2
Fjölbýlishús
211
1232 þ.kr./m2
69.000.000 kr.
Skoða eignina Eiðistorg 3
Skoða eignina Eiðistorg 3
Eiðistorg 3
170 Seltjarnarnes
61.1 m2
Fjölbýlishús
211
980 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Barmahlíð 41
3D Sýn
Kjallaraíbúð
Skoða eignina Barmahlíð 41
Barmahlíð 41
105 Reykjavík
71.3 m2
Fjölbýlishús
211
840 þ.kr./m2
59.900.000 kr.
Skoða eignina Skipholt 5
3D Sýn
Skoða eignina Skipholt 5
Skipholt 5
105 Reykjavík
110.3 m2
Fjölbýlishús
413
815 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin