Opið hús mánudaginn 24. ágúst frá kl 17:00 til 17:30 - Háaleitisbraut 26, 108 Reykjavík - íbúð 0402
Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:
Falleg, rúmgóð og björt 2ja herbergja útsýnisíbúð á efstu hæð í nýviðgerðu húsi við Háaleitisbraut.
Arkitekt hússins er Sigvaldi Thordarson. Eignin er samtals skráð 66,1 fm (þar af sérgeymsla í kjallara 4,2 fm)Lýsing eignar:
Forstofa: Parket á gólfi, fataskápur.
Setustofa: Rúmgóð og björt setustofa er opin að hluta við eldhús, parket á gólfi, útgengi á svalir sem snúa í vestur og eru
með miklu útsýni, stórir gluggar.
Eldhús: Parket á gólfi, eldri viðarinnrétting, gluggi.
Svefnherbergi: Rúmgott herbergi, parket á gólfi, fataskápar.
Baðherbergi: Flísar á gólfi og hluta veggja, baðkar.
Viðhald/endurbætur:Verið er að ljúka
múrviðgerðum og
málningarvinnu á húsinu að utanverðu sumarið 2026.
Þakjárn hússins var endurnýjað árið 2024.
Frárennslislagnir undir húsi voru endurnýjaðar árið 2019.
Íbúðinni fylgir
sérgeymsla í kjallara hússins (4,2 fm).
Íbúðinni fylgir aðgangur að sameiginlegu
þvottahúsi í kjallara hússins.
Í kjallara er 2ja herbergja íbúð sem er í eigu húsfélagsins á Háaleitisbraut 20-26, íbúð er leigð út og stendur undir hluta af þeim kostnaði sem fellur til hjá húsfélaginu.
Falleg íbúð í Sigvaldahúsi sem hefur verið haldið vel við - stutt í alla helstu verslun og þjónustu og helstu stofnæðar höfuðborgarsvæðisinsKringlan verslunarmiðstöð er í göngufæri.Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu olafur@hibyli.is
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is