Fasteignasalan TORG kynnir: Opið hús miðvikudaginn 18. júní kl.17:30-18:00.
Falleg og björt 161,9 fm efri sérhæð í endahúsi ásamt bílskúr við Lækjarvað í Norðlingaholti. Eignin sem er stílhrein og falleg með vönduðum innréttingum skiptist í fostofu, baðherbergi, 3 svefnherbergi, eldhús, stofu / borðstofu og þvottahús auk bílskúrs og geymslu.
Örstutt í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu í hverfinu.
Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Löggiltur fasteignasali í síma: 822-2225 eða á thora@fstorg.isSækja söluyfirlit hérNánari lýsing: Forstofa með stórum fataskáp, flisar á gólfi. Gengið er inn í forstofuna af jarðhæð og þaðan liggur flísalagður stigi upp á hæðina.
Eldhús tengist stofu og borðstofu í opnu rými, í eldhúsi er vönduð innrétting með góðu skápapláss, eldunareyju og vönduðum tækjum, flísar á gólfi.
Stofa og borðstofa er mjög rúmgóð og björt, gólfsíðir gluggar til suðurs og út á svalaverönd, flísar á gólfi. Útgengi er á mjög stóra og skjólgóða hellulagða svalaverönd.
Hjónaherbergi er rúmgott með stórum fataskápum, flísar á gólfi.
Barnaherbergi eru 2, bæði rúmgóð og góðir fataskápar eru í báðum herbergjum, flísar á gólfum.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf ljósum flísum, góð innrétting, baðkar, flísalagður sturtuklefi og handklæðaofn, gluggi er á baðherberginu.
Þvotthús með flísum á gólfi og glugga.
Bílskúr er
34,4 fm þar með talið geymsla innan bílskúrs.
Húsið lítur vel út að utan og lóð gróin og snyrtileg.
Bílastæði fyrir framan bílskúr og gönguleiðir eru hellulagðar og með hitalögn. Að baka til er einnig hellulögð verönd við bílskúr sem tilheyrir eigninni sem og hluti bakgarðs samkvæmt samkomulagi með neðri hæð.
Mjög falleg og vel skipulögð sérhæð ásamt bílskúr í endahúsi í vinsælu hverfi.Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-
3. Lántökugjald lánastofnunar - mismunandi eftir lánastofnunum.
Allar nánari upplýsingar veitir Þóra Þrastardóttir Löggiltur fasteignasali í síma : 822-2225 eða á thora@fstorg.is4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 74.900,- með vsk.