Fasteignaleitin
Skráð 26. mars 2025
Deila eign
Deila

Laxakvísl 12

RaðhúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Árbær-110
201 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
139.900.000 kr.
Fermetraverð
696.020 kr./m2
Fasteignamat
127.000.000 kr.
Brunabótamat
98.750.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1985
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Margir Inng.
Fasteignanúmer
2044003
Húsgerð
Raðhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Frá því að húsið var byggt
Raflagnir
Frá því að húsið var byggt
Frárennslislagnir
Frá því að húsið var byggt
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Endurnýjað 2021
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Suður
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Margir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýtt á skrá! Laxakvísl 12 Reykjavík - Bókið skoðun!

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir afar fallegt, bjart og vandað 6 herbergja 201,0 fermetra raðhús í raðhúsalengju á frábærum og fjölskylduvænum stað við Laxakvísl 12 í Reykjavík. Í húsinu eru 4 svefnherbergi, gestasnyrting, baðherbergi, stór stofa, rúmgóð borðstofa, fjölskyldurými/sjónvarpsstofa, eldhús, þvottaherbergi og bílskúr. Húsið er afar sjarmerandi og bjart með stórum gluggum til suðurs í stofu. Árið 2021 var þakið endurnýjað (pappi og járn) ásamt því að skipt var um alla þakglugga. Þá er nýlega búið að skipta um svalahurð og hurð frá stofu út í bakgarð.

Gengið í skjólgóðan bakgarð til suðurs frá stofu þar sem tyrfð flöt tekur við viðar verönd. Fallegur gróður á lóðarmörkum. Svalir til suðurs inn í bakgarð frá efri hæð. Hellulögð stétt er fyrir framan hús og snjóbræðsla að húsi og fyrir framan bílskúr. Beð með fallegum gróðri eru við inngang hússins. Afar góð staðsetning með útsýni að Árbæjarsafni.

Um er að ræða eftirsótta staðsetningu í góðu fjölskylduhverfi í Ártúnsholti í Reykjavík þar sem stutt er í grunnskóla og leikskóla. Frábærar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni. Stutt er í helstu stofnæðar þar sem hverfið er afar vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. 

Nánari lýsing:

Jarðhæð:
Forstofa: Með flísum á gólfi. Gengið er inn í bílskúr frá forstofu.
Hol: Er rúmgott með parketi á gólfi og góðum skápum.
Stofa: Er stór, björt og með parketi á gólfi. Gluggar til suðurs. Stofa rúmar mjög vel setustofu og borðstofu. Útgengi frá stofu í bakgarð hússins.
Eldhús: Með hvítri/beyki eldhúsinnréttingu með góðu skápaplássi. Siemens bakaraofn, keramik helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Góður borðkrókur og gluggi til norðurs.
Gestasnyrting: Með flísum á gólfi, salerni og vaski.
Bílskúr: Er snyrtilegur með máluðu gólfi og vask. Heitt/kalt vatn og geymsluloft. Inngangshurð er á bílskúrshurð en einnig er innangengt frá forstofu.

Efri hæð: 
Fjölskyldurými/sjónvarpsstofa: Með parketi á gólfi, aukinni lofthæð og nýlegum þakgluggum. 
Hjónaherbergi: Er rúmgott, með parketi á gólfi og góðu skápaplássi. Aukin lofthæð að hluta og gluggar til norðurs.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs. Í dag hefur verið opnað á milli svefnherbergis I og svefnherbergis II en auðvelt er að breyta þeim aftur í tvö svefnherbergi. Aukin lofthæð að hluta.
Svefnherbergi III: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs. Aukin lofthæð að hluta.
Svefnherbergi IV: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs. Aukin lofthæð að hluta og útgengi á svalir.
Svalir: Snúa til suðurs inn í bakgarð hússins. Fallegt útsýni að Árbæjarsafni.

Nánari upplýsingar:
Heimir Hallgrímsson, lögg. fasteignasali / heimir@fastlind.is / 849-0672
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
2044003
Byggingarefni
Steypt
Fasteignamat samtals
0 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fálkahlíð 5 (325)
Bílskúr
Bílastæði
Fálkahlíð 5 (325)
102 Reykjavík
167.7 m2
Fjölbýlishús
413
834 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Hvannarimi 26
Skoða eignina Hvannarimi 26
Hvannarimi 26
112 Reykjavík
179.9 m2
Raðhús
614
722 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Blesugróf 26
Bílskúr
Skoða eignina Blesugróf 26
Blesugróf 26
108 Reykjavík
185.2 m2
Einbýlishús
413
755 þ.kr./m2
139.900.000 kr.
Skoða eignina Brekkusel 31
Bílskúr
Skoða eignina Brekkusel 31
Brekkusel 31
109 Reykjavík
244.3 m2
Raðhús
725
532 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin