Fasteignasalan TORG og Margrét Rós lgf. kynna í sölu fallegt og vel skipulagt 6-7 herbergja raðhús ásamt tvöföldum bílskúr við Brúarás í Árbæ. Um er að ræða afar skemmtilega og rúmgóða íbúð á tveimur hæðum ásamt rishæð. Mögulegt að útbúa 3. herb. aukaíbúð á jarðhæð. Eignin telur fjögur svefnherbergi en mögulegt að útbúa fimmta herbergið í risi. Bílskúr er sérstæður með hita, rafmagni og millilofti. Snjóbræðslukerfi í bílastæði og stétt. Skjólgóð verönd er á milli hús og bílskúrs og hellulögð verönd í bakgarði. Frábær fjölskyldueign í grónu hverfi sem býður upp á mikla möguleika. Allar nánari upplýsingar veitir Margrét Rós lgf. í s. 856-5858 eða margret@fstorg.is*** SÆKJA SÖLUYFIRLIT HÉR *** Birt heildarstærð eignar samkvæmt skv. fasteignaskrá HMS er 250,0 m² og skiptist í 208 m² raðhús á tveimur hæðum (112 m²) ásamt kjallara (96 m²) og 42 m² bílskúr. Vel staðsett eign í
fjölskylduvænu hverfi, stutt er í stofnbrautir ásamt því að öll helsta þjónusta er í nágrenni, m.a.
leikskóla,
skóla,
íþróttamiðstöð, sundlaug og
matvörubúðir,
líkamsrækt og margt fleira. Leikskólinn
Heiðarborg og
Rofaborg, og
Árbæjarskóli eru í göngufæri, ekki þarf að fara yfir stóra götu á leið í skólann. Örstutt er í góð
útivistarsvæði í
Elliðaárdalinn og
Heiðmörk til að njóta útiverunnar og frábærar göngu- og hjólaleiðir í nágrenninu.
Nánari lýsing eignar: - Miðhæð -Skiptist í forstofu, þar sem aðalinngangur er, eldhús, búr, samliggjandi borðstofu og stofu, svefnherbergi m/fataherbergi og baðherbergi.
Forstofa er björt og rúmgóð með fatahengi á vegg og flísum á gólfi.
Eldhús er rúmgott, opið við borðstofu. Snyrtileg viðarinnrétting og eyja með góðu borðplássi. Tengi fyrir uppþvottavél í innréttingu og parket á gólfi.
Búr inn af eldhúsi er rúmgott með hillum.
Borðstofa og stofa eru samliggjandi og rúmgóðar inna af eldhúsi með parket á gólfi. Stofan er með aukinni lofthæð, en þaðan er útgengt á svalir í suðaustur og þaðan niður á hellulagða verönd í bakgarði.
Hjónaherbergi er bjart og rúmgott með opnu fataherbergi innaf og parket á gólfi. Innaf fataherbergi er Innangengt á baðherbergi.
Baðherbergi er flísalagt á gólfi og veggjum að hluta til. Með snyrtileg innréttingu, upphengdu salerni, sturtuklefa og handklæðaofni.
Fallegur
stigi fyrir miðju íbúðar tengir saman hæðirnar þrjár og setur fallegan svip á húsið.
- Rishæð -Skiptist í stórt svefnherbergi og stórt gluggalaust rými, mögulegt er að bæta við þakglugga og útbúa annað svefnherbergi og jafnvel sjónvarpshol líka. Er að hluta til undir súð, gólffermetrar eru því fleiri en birtir fermetrar.
Stigapallur er parketlagður og opinn niður í stofu sem skapar gott birtuflæði.
Svefnherbergi er rúmgott með fataskáp góðum þakglugga, parket á gólfi.
Herbergi/geymsla sem er mjög stór með parket á gólfi. Mögulegt að skipta rýminu og útbúa svefnherbergi og sjónvarpshol.
Gott
geymslurými er á hæðinni undir súð að vestan og norðanverðu með miklu skápaplássi.
- Jarðhæð/Kjallari - Sérinngangur er á jarðhæðina
Skiptist í forstofu, þvottahús, tvö svefnherbergi, baðherbergi og sjónvarpsstofu. Sérinngangur er á jarðhæð og því möguleiki að útbúa 3ja herbergja íbúð.
Stigi frá miðhæð liggur niður á jarðhæð hússins, með góðu geymslurými undir stiga.
Forstofa er björt með fataskáp og flísum á gólfi.
Þvottahús er rúmgott inn af forstofu, með góðu skápapláss, vaski og flísar á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf með baðkari, sturtuklefa og gufuklefi (tómt rými í dag), snyrtilegri innréttingu, upphengdu salerni og handklæðaofni.
Svefnherbergi I rúmgott með parket á gólfi og góðu skápaplássi.
Svefnherbergi II rúmgott með parket á gólfi, góðu skápaplássi og útgengi á hellulagða verönd og bakgarð í suðaustur.
Stofa/sjónvarpsstofa er rúmgóð með teppi á gólfi.
BÍLSKÚR:
Tvöfalldur bílskúr (42 m
2) með hita og rafmagni er sérstæður fyrir framan húsið. Bílskúrshurðir með rafmagnsopnun og gluggi með opnanlegu fagi. Milliloft með geymslurými er yfir hluta bílskúrs og innangengt er um útidyrahurð aftanverðu á bílskúr úr garði. Býður einnig upp á möguleika á auka íbúð. Bílastæði og stéttir með bræðslukerfi.
HÚSIÐ OG LÓÐ:Raðhúsið er steinsteypt, byggt 1992 en tekið í notkun 1998. Steyptur og hellulagður gangstígur liggur að húsinu með snjóbræðslu. Afgirt verönd/garður er fyrir framan húsið og góður bakgarður afgirtur með runnum og hellulögð verönd aftan við hús. Tveir inngangar eru að framan sem liggja upp á miðhæð og niður á jarðhæð.
Framkvæmdir og viðhald síðustu ára:
- Hús og bílskúr málaður að utan
(2025)
- Ný snjóbræðsla og stétt steypt fyrir framan hús
(2025) - Endurgera garð að framan verðu. Lagnir lagðar fyrir heitan pott og undirstöður fyrir pall
(2025)
- Skipt um þakkant á húsi og hluta til á bílskúr
(2024) - Svalahurð og gluggi í stofu endurnýjaður fyrir nokkrum árum
af fyrri eiganda
Nánari upplýsingar veita:Margrét Rós Einarsdóttir - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.
856-5858 /
margret@fstorg.isAðalsteinn Bjarnason - Löggiltur fasteignasali í Félagi fasteignasala / s.
773-3532 /
adalsteinn@fstorg.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.