Domusnova fasteignasala og Sölvi Sævarsson lgf, kynna í einkasölu: Endaraðhús með 5 svefnherbergjum á glæsilegum útsýnisstað við Ólafsgeisla 43 í Grafarholti. Húsið er vel skipulagt á tveimur hæðum með glæsilegu útsýni í suður og suðvestur. Einstakt úttsýni yfir golfvöll GR, borgina og að sjó í vestur.
Húsið er steinað og viðhaldslítið að utan. Innkeyrsla er hellulögð með snjóbræðslukerfi. Bílastæði fyrir 4-5 bíla framan við hús.
Eignin er í heild skráð 192,5 fm skv. Hms, þar af er bílskúr 25,9 fm. Á neðri hæð hússins er til viðbótar svefnherbergi og geymsla samtals 24 fm sem ekki er inni í skráðri fermetratölu eignarinnar. Eignin sem er því alls samtals 216,5 fm.
Fasteignamat ársins 2026 er kr. 139.150.000 kr. Byggingarár er 2004.
Á efri hæð aðkomuhæð er anddyri, snyrting, svefnherbergi, eldhús, stofa og borðstofa ásamt bílskúr. Á neðri hæð hússins eru 4 svefnherbergi, rúmgott sjónvarshol, stórt baðherbergi, þvottahús og geymsla inn af þvottahúsi.
-- BÓKIÐ SKOÐUN --
Allar nánari upplýsingar veitir Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali í s. 618-0064 eða solvi@domusnova.is
Nánari lýsing:
Aðalhæð:
Anddyri - Góðir skápar sem ná upp í loft, Flísar á gólfi og gólfhiti.
Snyrting - Innrétting í ljósum viðarlit, upphengt salerni og flísar á gólfi með gólfhita.
Herbergi 1 - Ágætlega rúmgott herbergi á vinstri hönd inn af anddyri með parketi á gólfi.
Alrými: - stofa/borðstofa - Bjart alrými með mikilli lofthæð og stórum gluggum á tvær hliðar, innfelld lýsing í loftum. Glæsilegt útsýni er yfir golfvöll GR og í vestur að sjó og kvöldsól. Parket á gólfi.
Útgengt á stórar svalir frá stofu sem liggja samsíða allri suðvesturhlið hússins.
Eldhús - Eldhúsinnrétting er snyrtileg Ikea innrétting úr eik, Innbyggð uppþvottavél, og innfeld lýsing í loftum. Dökkar flísar á gólfi.
Gengið niður steyptan parketlagðan stiga þar sem gluggi er á suðurhlið hússins, einstakt útsýni í suður og að fallegri náttúru.
Neðri hæð:
Sjónvarpshol - Rúmgott sjónvarpshol með parketi á gólfi.
Hjónaherbergi - Er á vinstri hönd þegar komið er niður í hol og er ágætlega rúmgott með fataskápum og hurð út á stóran sólpall sem er með skjólgirðingum kringum allan pallinn.
Barnaherbergi - fataskápur og parket á gólfi gluggi snýr að sólpali í vestur.
Barnaherbergi - Án fataskáps og parket á gólfi.
Baðherbergi - Er með flísum í hólf og gólf, sturtuklefi, nuddbaðkar, upphengt wc, góð innrétting, gólfhiti, handklæðaofn
Þvottahús - Flísalagt, með góðri innréttingu og vinnuborði. Vaskur og tenglar fyrir þvottavél og þurrkara.
Geymsla - Er staðsett inn af þvottahúsi, flísar á gólfi, góðar hillur. Geymslan er ekki inni í skráningu hússins og er c.a 10 fm nettó
Herbergi 5 - Er staðsett á hægri hönd þegar komið er niður stiga af efri hæð. Herbergið er ekki inni í skráningu húsins og er rúmgott (12,2 fm nettó) með góðum gluggum og parketi á gólfi.
Innréttingar og gólfefni: Eldhúsinnrétting er úr eikarvið. Innihurðar eru yfirfelldar eikarhurðar. Fataskápar eru úr eik. Gólfefni er spónlagt eikarparket.
Bílskúr: Er 25,9 fermetrar að stærð, málað gólf, heitt og kalt vatn. Gönguhurð inn í bílskúr við yfirbyggt anddyri. Bílskúrshurð er fellihurð með rafmagnsopnun.
Innkeyrsla er hellulögð með snjóbræðslukerfi. Bílastæði fyrir 4-5 bíla framan við hús.
Nánasta umhverfi:
Staðsetning eignarinnar er afar góð á eftirsóknaverðum stað við Ólafsgeisla. Stutt er í flesta þjónustu og verslarnir, skóla og leikskóla. Stutt í golfvöll GR í Grafarholti og Fallegar hjóla- og gönguleiðir í næsta nágrenni.
Nánari upplýsingar veitir:
Sölvi Sævarsson löggiltur fasteignasali. í síma 618-0064 eða solvi@domusnova.is
– eða skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila, (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt kr. 50.000 - 75.000. Sjá nánar á heimsíðum lánastofnanna.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 79.900 kr.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða þá greiðir kaupandi skipulagsgjald þegar það verður lagt á. Skipulagsgjaldið er 0.3% af endanlegu brunabótamati.