RE/MAX og Jón Norðfjörð löggiltur fasteignasali kynna - Beykidal 10 í Reykjanesbæ, fallega 3ja herbergja endaíbúð á annarri hæð með sérinngangi og tvo samliggjandi bílskúra. Íbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, stofu, baðherbergi, eldhús, þvotthús innan íbúðar og tvo samliggjandi bílskúra á jarðhæð, undir íbúðinni. Fjögur bílastæði tilheyra íbúðinni.
Eignin er vel staðsett í Ytri Njarðvík í Reykjanesbæ, sérstaklega fjölskylduvænt umhverfi, leikvöllur er í bakgarðinum og í göngufæri við leik -og grunnskólann Stapaskóla og einnig stutt í verslunarkjarna.
Samgöngur til og frá svæðinu eru góðar og er eignin í aðeins 20 mínúta aksturfjarlægð frá Hafnarfirði.
Húsið er byggt 2008 og skráðir fm eru 145,2. Þar af er íbúðin skráð 83,3 fm og bílskúrar 61,9 fm. Tvö merkt bílastæði fylgja eigninni fyrir utan stæðin við bílskúrana.
Nánari upplýsingar veitir Jón Norðfjörð löggiltur fasteignasali í síma 793-9919 eða á jon@remax.isFáðu söluyfirlitið sent samstundis með því að smella hérHér er hægt að sjá eignina í 3DNánari lýsing eignar:Forstofan er með harðparketi á gólfi og góðum fataskáp sem færður hefur verið innar í rýmið við þvottaaðstöðuna.
Þvottahús er til hliðar við forstofu og er það með flísum á gólfi að hluta til og harðparketi þar sem forstofu fataskápurinn er staðsettur. Hvít innrétting með skolvaski og tæki í vinnuhæð.
Stofan er björt og rúmgóð og liggur saman við borðstofu og eldhús. Harðparket er á gólfi.
Eldhús er opið við borðstofu og stofu og er með harðparketi á gólfi og fallega innréttingu, hurð er út á svalir sem snúa í suður.
Herbergin eru tvö og eru þau með harðparketi á gólfi og góðum fataskápum.
Baðherbergi er með hvíta innréttingu, upphengt salerni og walk-in sturtu. Flísar á gólfi.
Bílskúr I er með flísalögðu gólfi og lögnum fyrir vatn og loft.
Bílskúr II er með flísar á gólfi.
Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér eignina vel að innan sem utan og leita sér eftir atvikum ráðlegginga og aðstoðar sérfróðra manna við skoðun.
Nánari upplýsingar veitir Jón Norðfjörð fasteignasali í síma 793-9919 / jon@remax.is.****
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.500 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 45-75 þús.kr. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900 mvsk.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.
Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð
og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.