Fasteignaleitin
Skráð 22. sept. 2026

Langimelur 27

Jörð/LóðHöfuðborgarsvæðið/Mosfellsbær/Kjós-276
5,600 m2
Verð
10.900.000 kr.
Fermetraverð
1.946 kr./m2
Fasteignamat
2.780.000 kr.
Mynd af Jón Smári Einarsson
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur
Fasteignanúmer
2519247
Landnúmer
232928
Húsgerð
Jörð/Lóð
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Lóð
100
Jón Smári Einarsson lgf., s. 8606400 og Fasteignaland kynna einstaklega fallega sumarhúsalóð Langimelur 27, í Hvammsvík í Kjósarhreppi í mynni Hvalfjarðar. Svæðið er frábært útivistarsvæði í einungis 45 mín. fjarlægð frá Reykjavík. Fjölbreytt landslag, fjöll, lækir og fossar að ógleymdri strandlengjunni. Lóðin er 5600 fm að stærð og heimilt byggingarmagn er 3% af lóðarstærð eða um 168 fm.

Rafmagn, ljósleiðari og kalt vatn eru við lóðarmörk.
Seljandi hefur greitt Kjósarveitum fyrir heimtaug hitaveitu
og greitt 70% tengigjalds. Núna er bráðabirgðahitaveitulögn á svæðinu. Kaupandi greiðir eftirstöðvar, þ.e. 30% kostnaðar tengigjalds til Kjósarveitna þegar þar að kemur.
Árgjald sumarhúsafélgsins er um kr. 25.000 á ári og sér félagið um viðhald vega og rekstur rafmagnshliðs ásamt snjómokstri ef með þarf.
Árgjald fyrir kalt vatn er um kr. 37.000 á ári.
Lokað svæði með rafmagnshliði (símahlið).
Flokkunarstöð á vegum sveitarfélagsins er í Raðahverfi í landi Háls sem er tæpa 2 km. frá sumarhúsasvæðinu.
Sjá staðsetningu lóðarinnar á Google Maps hér.
Sjá 3D mynd af svæðinu hér (sjá leiðbeingar um notkun í (i) hnappi).
Stutt er í náttúrulegar jarðhitalaugar og veitingar í Hvammsvík.

Kaupandi skuldbindur sig til að leigja ekki hús á lóðinni í skammtímaleigu þ.e. í skemmri tíma en þrjá mánuði og er þinglýst kvöð þess efnis.

Nánari upplýsingar veitir:
Jón Smári Einarsson
Löggiltur fasteignasali / MPM, viðskiptafræðingur.
jonsmari@fasteignaland.is
860-6400

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup á íbúðarhúsnæði m.v. amk. 50% hlut) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda kr. 69.900 . 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (16)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Eyri Kjós Djúpagróf 4
Eyri Kjós Djúpagróf 4
276 Mosfellsbær
Jörð/Lóð
22.000.000 kr.
Skoða eignina Norðurnes (Verkefni) 90
Norðurnes (Verkefni) 90
276 Mosfellsbær
30 m2
Jörð/Lóð
11
597 þ.kr./m2
17.900.000 kr.
Skoða eignina Reykjabyggð 14
Á einni hæð
Skoða eignina Reykjabyggð 14
Reykjabyggð 14
270 Mosfellsbær
203.6 m2
Einbýlishús
624
675 þ.kr./m2
137.500.000 kr.
Skoða eignina Vörðubrekka 1
Skoða eignina Vörðubrekka 1
Vörðubrekka 1
806 Selfoss
Jörð/Lóð
5.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin