Fasteignaleitin
Skráð 27. júlí 2026

Nýibær 4

Jörð/LóðSuðurland/Hella-851
94 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
Verð
62.000.000 kr.
Fermetraverð
659.574 kr./m2
Fasteignamat
6.720.000 kr.
Mynd af Halla Unnur Helgadóttir
Halla Unnur Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Fasteignanúmer
2543776
Landnúmer
241432
Húsgerð
Jörð/Lóð
Hæðir í húsi
1
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Gimli fasteignasala kynnir:  Nýibær 4, 851 Hella. Ertu að leita að fullkomnum stað fyrir draumabúsetu, smábýlið eða framtíðarferðaþjónustuna? Einstakt tækifæri í Þykkvabæ; Byggingarlóð með fjölbreytta nýtingarmöguleika og mikla tekjumöguleika!.
Fasteignasalan kynnir til sölu afar spennandi og fjölbreyttar byggingarlóðir við nýju götuna Nýjabæ (nr. 2 til 17) í hinu fagra og rómaða samfélagi í Þykkvabæ. Hér gefst kaupendum einstakt tækifæri til að hanna sína eigin paradís. Lóðirnar bjóða upp á mikinn sveigjanleika, hvort sem markmiðið er fjölskylduvænt sveitalíf, minniháttar dýrahald eða arðbær ferðaþjónusta allt árið um kring. Ath. að myndir í kynningu og kynningarmyndband er hannað með aðstoð AI og gefa einungis hugmynd um framtíðarútlit og nýtingu.

Eignin Nýibær 4 er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 254-3776, birt stærð 11.161,7 m² (1,11617 ha). Nánar tiltekið eign merkt 00-01, ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar- og sameignarréttindi. Nánari upplýsingar hjá Halla Unnur Helgadóttir í síma 6594044, eða halla@gimli.is

NÁNARI LÝSING:

Helstu kostir og byggingarmöguleikar:
Fjölbreytt mannvirki: Heimilt er að reisa allt að 6 hús á hverri lóð á einni hæð (mænishæð 5m).
Skipulag á lóð: Leyfi er fyrir 1 íbúðarhúsi, 4 gestahúsum og 1 hesthúsi/geymslu (allt að 5 íbúðir samtals).
Ferðaþjónusta og tekjur: Kjörinn staður fyrir ferðaþjónustu. Leyfilegt er að leigja út gestahús allt árið og bjóða upp á gistingu fyrir allt að 10 manns í flokki I og II.
Draumur smábóndans: Einstakt leyfi fyrir minniháttar dýrahaldi. Heimilt er að vera með allt að 5 hesta, 10 kindur, 10 hænur (án hana), auk hunda og katta.
Gott aðgengi: Lóðirnar afhendast með tilbúnum aðkomuvegi samkvæmt teikningu. Heimreið er sameiginleg með hverjum tveimur lóðum (t.d. 2 og 3, 4 og 5).
Innviðir: Rafmagn og vatn verða leidd að lóð nr. 1 og sjá kaupendur sjálfir um tengingu þaðan inn á sína lóð. Öll starfsemi og bílastæði rúmist innan hverrar lóðar (nýtingarhlutfall 0,05).
Þjónusta og staðsetning: Þykkvibær er þekktur fyrir fallega náttúru og fjölskylduvænt umhverfi. Öll nauðsynleg þjónusta er í þéttbýliskjarna Þykkvabæjar og á Hellu. Skólabíll þjónustar svæðið, sem gerir þetta að frábærum valkosti fyrir fjölskyldur sem vilja búa í sveitasælunni en hafa þægindin í seilingarfjarlægð.

Sveigjanleg kaup og verðmöguleikar:
Hægt er að velja um að kaupa lóðina eina og sér eða fá hana afhenta með fullbúnu húsi:
Eingöngu lóð (án mannvirkja): 20,2 millj. kr.
Lóð með 94 fm íbúðarhúsi: 62 millj. Kr. (útfærsla á þessari lóð í kynningu)
Lóð með 114 fm íbúðarhúsi: 66 millj. Kr.
Einnig er hægt að semja um kaup og uppsetningu á aukahúsum (gestahúsum/geymslum) að eigin vali kaupenda samkvæmt hagstæðri verðskrá.
Ekki láta þetta einstaka tækifæri framhjá þér fara – hannaðu þitt eigið smábýli eða ferðaþjónustu í hjarta Suðurlands!
Sýningarhús verður reist á lóð nr. 2

Myndbandskynning: hér

Niðurlag:
Nánari upplýsingar veitir: Halla Unnur Helgadóttir Löggiltur fasteignasali, í síma 6594044, tölvupóstur halla@gimli.is eða gimli@gimli.is

Gimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.

Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.

Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.

Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími: 570 4800, tölvupóstur: gimli@gimli.is

Gimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasölu

Gimli á Facebook

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (6)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Nýibær 3
Skoða eignina Nýibær 3
Nýibær 3
851 Hella
Jörð/Lóð
20.200.000 kr.
Skoða eignina Áströð 5
Skoða eignina Áströð 5
Áströð 5
851 Hella
Jörð/Lóð
8.900.000 kr.
Skoða eignina Mosabraut 10
Skoða eignina Mosabraut 10
Mosabraut 10
851 Hella
Jörð/Lóð
3.500.000 kr.
Skoða eignina Tjörn 0
Skoða eignina Tjörn 0
Tjörn 0
851 Hella
340.1 m2
Jörð/Lóð
513
235 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin