Fasteignaleitin
Skráð 2. júlí 2025
Deila eign
Deila

Skipholt 1 (405)

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
100.4 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
Verð
104.900.000 kr.
Fermetraverð
1.044.821 kr./m2
Fasteignamat
78.800.000 kr.
Brunabótamat
54.600.000 kr.
Byggt 1960
Fasteignanúmer
2522301
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
4
Hæðir í húsi
5
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
5
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Háborg kynnir: Skipholt 1 - Nýlega endurbyggt hús. Íbúð 405.

Íbúð 405 er rúmgóð 3ja herbergja íbúð, með aukinni lofthæð, í fallegu enduruppgerðu lyftuhúsi í útjaðri miðborgarinnar. Inngangur frá svalagangi. Forstofa með góðum skápum og tvö svefnherbergi. Stórt bjart alrými með útgengi á 4 fm suðursvalir. Baðherbergi með sturtu og þvottaaðstöðu. Harðparket á gólfum og innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Sjálf íbúðin er 87,5 fm og geymsla í kjallara 12,9 fm.

Aukin lofthæð og einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5. hæð. Örstutt göngufæri í matvöruverslun og niður á Hlemm, sem er að umbreytast í grænt og vænt almenningsrými.

Ath. að myndir eru úr íbúð 205, sem er að sama skipulagi.

Sjá á heimasíðu verkefnisins.

Allar nánari upplýsingar veita Þórir Helgi Sigvaldason lögm. og lgf. í síma 823-7170, eða á thorir@haborg.is, Þórunn Pálsdóttir lgf, s. 773-6000, thorunn@haborg.is, Jórunn Skúladóttir lgf., s. 845-8958, jorunn@haborg.is, og Katla Hanna Steed lgf., s. 822-1661 eða katla@haborg.is.

Húsið: Skipholt 1 er glæsileg endurbygging á frábærum stað í hjarta Reykjavíkur á horni Stórholts og Skipholts mót hásuðri. Í reisulegu húsi þar sem Listaháskóli Íslands var starfræktur í áratugi hafa nú verið innréttaðar 34 heillandi íbúðir og tvö atvinnurými. Einstakar sameiginlegar þaksvalir á 5.hæð hússins auka lífsgæði allra íbúa, en þar er sólríkt og magnað útsýni til sjávar og fjalla.

Hönnun: HAF studio kom að hönnun og efnisvali í íbúðirnar. Allar íbúðir afhendast fullbúnar með 8mm harðparketi frá Agli Árnasyni, svo og innbyggðum ísskáp og uppþvottavél frá AEG. Innréttingar koma frá GKS, flísar frá Harðviðarvali, hurðar frá Agli Árnasyni, blöndunartæki í eldhúsi og baðherbergi eru frá Grohe, sturtutæki eru einnig frá Grohe, salerni eru með hæglokandi setum, heimilistæki eru frá AEG (ofn, helluborð, innbyggður ísskápur, vifta með kolafilter og uppþvottavél) Hefðbundið ofnakerfi er á íbúðum með hitastýribúnaði frá Danfoss.

Garðurinn: Á bak við húsið er heillandi og skjólgóður inngarður hannaður af Hermanni Ólafssyni landslagsarkitekt.
Þar kallast fjölbreyttur gróður á við hellur og útskorið malbik sem myndar göngustíg sem liðast eins og lækur eftir garðinum. Pollaljós og garðljós gefa fallega birtu. Innst til hægri er upplyft hellulagt dvalarsvæði.

Staðsetning: Hér er allt sem þarf fyrir nútímalegan miðborgarlífsstíl. Fjöldi veitingastaða og fjölbreytt þjónusta í stuttu göngufæri að ógleymdri útivistarperlunni Klambratúni. Íbúar í Skipholti eiga rétt á íbúakorti og mega þá leggja í gjaldskyldum stæðum á svæði H, auk þess sem ógjaldskyld stæði eru í nágrenninu, þ.á.m. í Skipholti. Íbúakortið kostar kr. 1.400- á mánuði fyrir rafmagns og vetnis bifreiðar, en kr. 2.800 fyrir aðrar tegundir bifreiða.

Kaupandi greiðir skipulagsgjald þegar það verður lagt á.

 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Háborg fasteignasala ehf
https://www.haborg.is

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Heklureitur - Íbúð 411
Heklureitur - Íbúð 411
105 Reykjavík
98.4 m2
Fjölbýlishús
312
1046 þ.kr./m2
102.900.000 kr.
Skoða eignina Borgartún 24 - íbúð 601
Bílastæði
Borgartún 24 - íbúð 601
105 Reykjavík
81.5 m2
Fjölbýlishús
312
1164 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Skoða eignina Laugaborg 110
Skoða eignina Laugaborg 110
Laugaborg 110
105 Reykjavík
101 m2
Fjölbýlishús
312
988 þ.kr./m2
99.800.000 kr.
Skoða eignina Heklureitur - íbúð 212
Bílastæði
Heklureitur - íbúð 212
105 Reykjavík
95.3 m2
Fjölbýlishús
312
1038 þ.kr./m2
98.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin