Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Ásatún 6 íbúð 203 - Falleg 3-4ra herbergja íbúð á 2.hæð í norður enda í fjölbýli í Naustahverfi - stærð 96,3 m²
Sér inngangur, gengið er inn af svölum** Eignin er laus til afhendingar við kaupsamning ** Eignin skiptist í forstofu, eldhús og stofu í opnu rými, þrjú svefnherbergi en eitt þeirra er skráð sem geymsla, baðherbergi og þvottahús.
Forstofa er með flísum á gólfi og góðum fataskáp.
Eldhús og stofa eru í opnu og björtu rými með góðum gluggum til tveggja átta. Spónlögð eikar innrétting með hvítum flísum á milli skápa og dökkri bekkplötu. Borðkrókur með útsýnisglugga til norðurs. Úr stofu er gengið út á steyptar vestur svalir, skráðar 11,8 m² að stærð.
Svefnherbergin eru tvö, bæði með harð parketi á gólfum og spónlögðum eikar fataskápum. Stærðir herbergja eru skv. teikningum 9,0 og 12,9 m²
Geymsla hefur verið nýtt sem þriðja svefnherbergið. Þar er harð parket á gólfi, þrefaldur fataskápur og stór gluggi. Geymslan er skv. teikningum 9,0 m² að stærð.
Baðherbergi er með flísum á gólfi og hluta veggja, spónlagðri eikar innréttingu, upphengdu wc og baðkari með sturtutækjum.
Þvottahús er við hliðina á forstofu og þar eru flísar á gólfi, bekkur með stálvask, hillur og opnanlegur gluggi.
Á jarðhæð er sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.Annað- Mjög víðsýnt er úr íbúðinni þá sérstaklega til vesturs og norðurs.
- Allar innréttingar og skápar er spónlagt með eik.
- Harð parket og flísar eru á gólfum.
- Gólfhiti er í allri íbúðinni.
- Eignin er í einkasölu
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.