Aðalsteinn Jón Bergdal lgf. og Trausti fasteignasala kynna í einkasölu fallegt, mikið endurnýjað einbýlishús á einni hæð með mjög rúmgóðum tvöföldum bílskúr og verðlaunagarði í rólegum botnlanga á einstaklega skjólgóðum stað í Hveragerði. Ný klæðning og þakkantur og 2022 var skipt um járn og pappa á þaki hússins. Baðherbergi og gestasalerni eru nýuppgerð, gluggar, rafmagn og lagnir mikið endurnýjuð. Í sumar var skipt um þakkant á bílskúr og sett falleg innfelld lýsing. Smelltu hér til að sækja söluyfirlit.
Fáðu frítt söluverðmat fyrir þína eign
Eignin er skráð samkvæmt HMS 191,4 fm og þar af er bílskúr 53,1 fm.
Nánari lýsing:
Forstofa er rúmgóð með fatahengi og flísar (nýlegar) á gólfi.
Gestasalerni var útbúið 2020 og er með upphengdu salerni og innfelldri lýsingu.
Hol er með parket á gólfi þaðan sem hægt er að ganga inn í opið rými, eldhús og stofur, eða svefnherbergisgang.
Stofa og
borðstofa í rúmgóðu rými með parket á gólfi og þaðan opið yfir í sólskála.
Sólskáli er bjartur og skemmtilegur með glugga á þrjá vegu og flísar á gólfi. Opið út á skjólpall með heitum potti.
Eldhús er endurnýjað að hluta með nýjum glugga og endurnýjuðum neðri hluta innréttingar. Tengi fyrir uppþvottavél og flísar á gólfi og milli skápa.
Búr innaf eldhúsi með góðu geymslurými.
Hjónaherbergi er rúmgott og uppgert með nýjum fataskáp með innbyggðri lýsingu, veggfóðri úr Sérefni og fallegu gólfteppi. Nýtt gler í glugga.
Svefnherbergi II er rúmgott með parket á gólfi. Nýtt gler í glugga.
Svefnherbergi III er rúmgott með parket á gólfi. Nýtt gler í glugga.
Baðherbergi var stækkað og endurnýjað frá grunni 2020. Mjög rúmgóð walk-in sturta og baðkar, upphengt salerni, góð innrétting og innfelld lýsing. Gólfhiti og nýir gluggar.
Þvottahús var endurnýjað 2021 með nýjum innréttingum, neysluvatnslögnum og flísum. Þaðan er útgengt út í "viðbyggingu" og þaðan beint yfir í bílskúr.
Viðbygging er hálfkláruð og komið þak og einangrun í útvegg en nýir eigendur eiga möguleika á að útfæra þennan hluta eftir sínu höfði og mögulega bæta fermetrunum við húsið.
Bílskúr er tvöfaldur með steypt gólf, niðurföll, tveimur rafdrifnum bílskúrshurðum, flísalagðri geymslu innan bílskúrs og rafmagn, hita og vatni.
Skemmtileg eign með flotta og mikla möguleika. Gróinn og fallegur garður sem hefur m.a. hlotið viðurkenningu en þar leynast ótal blómstrandi tegundir ásamt ávaxtatrjám, berjarunnum, 2 gróðurhúsum með vínvið og kirsubjeratré og hænsnakofa í bakgarði. Mjög stutt í góðar gönguleiðir. Reykjadalurinn og mikil náttúrfegurð í göngufæri og stutt í alla helstu þjónustu, skóla, ýmsa aðra útivist og íþróttir. Sjón er sögu ríkari.
Nánari upplýsingar um eignina veitir Aðalsteinn Jón Bergdal, löggiltur fasteignasali, í síma 767-0777 eða á netfanginu alli@trausti.is