Fasteignaleitin
Skráð 15. júní 2026

Vallarbraut 24

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Seltjarnarnes-170
223.1 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
3 Baðherb.
Verð
174.900.000 kr.
Fermetraverð
783.953 kr./m2
Brunabótamat
110.350.000 kr.
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
20687441
Húsgerð
Einbýlishús
Inngangur
Tveir inngangar

Borg fasteignasala kynnir til sölu vel skipulagt einbýlishús á einni hæð að Vallarbraut 24 á Seltjarnarnesi.
Eigninni fylgir tvöfaldur bílskúr og garðskáli sem hefur verið nýtt ásamt hluta bílskúrsins sem rúmgóð stúdíóíbúð
. Húsið stendur á rúmgóðri lóð með góðum hellulögðum svæðum og suðurverönd.

Samkvæmt skráningu er eignin samtals 223,1 fm. Þar af er íbúðarhúsið 140,2 fm, bílskúr 54,8 fm og garðskáli við bílskúr 28,0 fm.
Eignin er skráð hjá FMR/HMS sem fasteignanúmer 206-8744, birt stærð 223,1 fm.

Fá söluyfirlit og fleiri upplýsingar um Vallarbraut 24

Nánari lýsing
Gengið er inn í húsið að framanverðu frá Vallarbraut. Einnig er annar inngangur bakatil um þvottahús, þar sem aðkoma er að bílastæðum og bílskúr.
Forstofa er flísalögð og með fataskápum. Inn af forstofu er gestasnyrting með lítilli innréttingu og glugga. Frá forstofu er gengið inn í stórt herbergi með parketi og speglaskápum. Svefnherbergisálma er með flísalögðum gangi, tveimur barnaherbergjum með parketi og rúmgóðu hjónaherbergi innst á ganginum. Hjónaherbergið er með parketi og fataskáp
Baðherbergi er staðsett á móti hjónaherbergi. Það er flísalagt, að mestu upprunalegt, með innréttingu, baðkari og sturtu.
Eldhúsið er rúmgott og bjart. Þar er eikarinnrétting, að sögn eigenda yfir 10 ára gömul, með granítborðplötum. Náttúruflísar eru á gólfi. Opið er úr eldhúsi yfir í borðstofu og þaðan er útgengt á hellulagða suðurverönd. Stofan er rúmgóð og björt með stórum gluggum og parketi á gólfi. Rýmið nýtur góðrar birtu og tengist borðstofu á þægilegan hátt. Við hlið eldhúss er þvottahús. Þaðan er útgengt á stórt hellulagt svæði á milli íbúðarhúss og bílskúrs.

Bílskúr og stúdíórými
Bílskúrinn er tvöfaldur og skráður 54,8 fm, búið að setja upp hleðslustöð fyrir rafmagnsbíla. Við hlið hans er 28 fm garðskáli, sem hefur verið nýtt sem stúdíóíbúð. Rýmið skiptist í gott alrými með stórum opnanlegum fögum. Innangengt er á milli bílskúrs og rýmisins. Á milli bílskúrs og skála er snyrting með sturtu og ný lítil eldhúsinnrétting og þvottavél. Þetta rými býður upp á ýmsa möguleika, hvort sem er sem gestaaðstaða, vinnustofa, unglingarými eða önnur sambærileg notkun.

Lóð og útisvæði
Garður umlykur húsið. Við húsið eru góðar hellulagðar stéttir og verönd, meðal annars til suðurs út frá borðstofu. Hellulagt svæði milli húss og bílskúrs nýtist vel og gerir aðkomu að bílskúr og bakinngangi þægilega.

Vallarbraut 24 er rúmgott og vel skipulagt einbýlishús á einni hæð með fjórum svefnherbergjum, rúmgóða stofu, fínu eldhúsi, tvöföldum bílskúr og sér 28 fm garðskáli sem eykur notagildi eignarinnar. Eignin stendur á rúmgóðri lóð á góðum stað á Seltjarnarnesi og hentar vel fjölskyldu sem leitar að húsi með góðu rými, góðri aðkomu og fjölbreyttum nýtingarmöguleikum.

Nánari upplýsingar veitir
Victor Levi R. Ferrua, Löggiltur fasteignasali, í síma 868 2222 / victor@fastborg.is
Gunnlaugur Þráinsson Lögg. fasteignasali, í síma 844 6447 / gunnlaugur@fastborg.is.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.
2.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.
3.Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Borg fasteignasala
http://fastborg.is

Myndir (15)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Hjallabraut 47B
Opið hús:02. júlí kl 17:30-18:00
Skoða eignina Hjallabraut 47B
Hjallabraut 47B
220 Hafnarfjörður
159.7 m2
Raðhús
423
1058 þ.kr./m2
169.000.000 kr.
Skoða eignina Grænatún 20A
Skoða eignina Grænatún 20A
Grænatún 20A
200 Kópavogur
164.3 m2
Raðhús
523
912 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Lerkidalur 1
Bílskúr
Skoða eignina Lerkidalur 1
Lerkidalur 1
260 Reykjanesbær
239 m2
Einbýlishús
525
606 þ.kr./m2
144.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D1 601
Opið hús:02. júlí kl 11:30-12:30
Orkureiturinn D1 601
108 Reykjavík
120.3 m2
Fjölbýlishús
312
1245 þ.kr./m2
149.800.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin