Kaupstaður fasteignasala kynnir LYNGHEIÐI 25, 810 Hveragerði.
Fimm herbergja einbýlishús á einni hæð með innbyggðum bílskúr. Húsið stendur í grónu hverfi innst í botnlanga, stutt í alla almenna þjónustu, gönguleiðir og Hamarinn. Smellið hér fyrir staðsetningu.
SMELLTU HÉR FYRIR SÖLUYFIRLIT, TILBOÐSGERÐ OG ÖNNUR SKJÖL.
Húsið er steypt, byggt árið 1988. Eignin skiptist í íbúð 154.3 m² og bílskúr 40.6 m² að stærð samtals 194.9 m² að stærð samkvæmt skráningu HMS.
Skipulag eignar: Anddyri, eldhús og borðstofa/skáli, stofa, fjögur herbergi, baðherbergi, gangur, gestasalerni, þvottahús,
tvöfaldur bílskúr og sólstofa.
Nánari lýsing:
Anddyri; fatahengi, innangengt er úr anddyri í svefnherbergi og gestasnyrtingu.
Gestasnyrting, upphengt salerni og handlaug, flísar á gólfi.
Stofa, parket á gólfi, Arin er í stofu (virkur), frá stofu er útgengt í sólskála.
Eldhús með U-laga innréttingu og eyju, flísar á milli skápa. AEG uppþvottavél (fylgir), ofn og helluborð, vifta.Tvöfaldur ísskápur fylgir með. Flísar á gólfi.
Barnaherbergin eru tvö, fjórfaldur fataskápur eru í stærra herberginu, parket á gólfi.
Hjónaherbergi, harðviðarparket á gólfi, sexfaldur fataskápur.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf, upphengt salerni, rúmgóð innrétting með vask, sturta og baðkar, handklæðaofn, gluggi.
Þvottahús með innréttingu, pláss fyrir tvær vélar í vinnuhæð, stálvaskur í innréttingu. Dúkur á gólfi.
Bílskúr tvöfaldur, innangengt er í bílskúr úr þvottahúsi, einnig er inngönguhurð að aftanverðu. Tvær bílskúrshurðar, önnur með rafmagnsopnara. Inn af bílskúr er vinnuherbergi/skrifstofa, parket á gólfi.
Sólskáli, er framan við stofu í suður og vestur átt, steypt gólf.
Öll loftljós fylgja ásamt rúllugardínum. Hillur í bílskúr fylgja. Tvöfaldur ísskápur, keyptur 2024, fylgir. Sófi í stofu fylgir. Veggfastar hillur í alrými og barnaherbergi fylgja.
Lyngheiði 25 er steinsteypt hús á einni hæð byggt árið 1988. Hellulagt er fyrir framan húsið, meðfram og fyrir aftan bílskúrinn, hellulagt bílaplan pláss fyrir þrjár bifreiðar. Lóðin er fullfrágengin, steyptur pottur er fyrir framan hús, kartöflugarður fyrir aftan hús. Steyptur kantur er kringum alla lóðina. Lóðin er 748.8 m² leigulóð frá Hveragerðisbæ. Lóðarleigusamningur til 50 ára frá 16. febrúar 1983, skjal nr. 433-A-004412/1986.
Skráning eignarinnar hjá HMS: Fastanúmer 221-0761. Lyngheiði 25.
01.0101 Íbúð 154.3 m². 01.0102 Bílskúr 40.6 m². Samtals 194.9 m²
Brunabótamat: 113.750.000 kr.
Fasteignamat: 103.900.000 kr.
Byggingarár: 1988.
Byggingarefni: Steypa.
Eftirfarandi hefur verið endurnýjað á árunum 2022-2025: Haust 2023 var þakið endurnýjað í heild sinni, þak var sett á lektur, skipt var um dúk og sett nýtt stallað járn frá Áltak ásamt því að þakkantar, þakgluggar og reykháfur var klætt. Einnig var styrktarbiti settur undir skyggni framan við húsið. Desember 2024 var öðru gluggastykkinu í hjónaherberginu skipt út. Skjólveggir voru málaðir 2024. Rafmagnstöflur í anddyri og í bílskúr voru endurnýjaðar í heild sinni desember 2024. Öll innfeld loftljós (LED) í alrými, hjónaherbergi og öðru svefnherberginu var skipt út desember 2024 ásamt öllum ljósum í bílskúr. Gestasnyrting var tekin í gegn sumarið 2024, nýtt upphengt salerni, vaskaskápur og flísalagt. Aukaherbergi/skrifstofa var parketlagt og málað 2022. Sólskáli var endurbyggður sumarið 2025.
Til athugunar fyrir væntanlega kaupendur: Yfirfara þarf útiljós á lóð, endurnýja þarf nokkur ljós, búið er að kaupa og þau fylgja með. Farið er að sjá á parketi. Eldhúsinnrétting er gömul og komin til ára sinna. Dyrakarmur á baðherbergi er komin að viðhaldi. Ofn í sólskála hefur verið aftengdur. Brotið í kringum niðurfall í bílsskúrsgólfi, þarf að laga. Bílskúrshurðar eru óþéttar og ofn þar virkar ekki.
Um skoðunarskyldu:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Kaupstaður fasteignasala skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Upplýsingar sem koma fram í söluyfirliti eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi – 0,8% af heildarfasteignamati fyrir einstaklinga / 1,6% fyrir lögaðila
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar – sjá gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 79.900 m.vsk.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða er umsýslugjald 129.900 m.vsk.
Allar nánari upplýsingar á skrifstofu: www.kaupstadur.is | Borgartún 29, 105 Reykjavík | Kaupstaður
Opið alla virka daga milli kl. 10:00-15:00. Símsvörun alla virka daga milli kl. 09:00-16:00.
Nánari upplýsingar í síma 4540000 eða kaupstadur@kaupstadur.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 08/04/2022 | 61.350.000 kr. | 77.000.000 kr. | 194.9 m2 | 395.074 kr. | Já |
| 08/02/2007 | 27.270.000 kr. | 33.250.000 kr. | 194.9 m2 | 170.600 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
250 | 140,6 | 98,5 | ||
112 | 115,2 | 114,9 | ||
230 | 304,3 | 149 | ||
108 | 206,3 | 149,9 | ||
210 | 128,9 | 117,9 | ||
200 | 328,5 | 188,5 |