PRÓFUN Eignakaupa · EIGNAKAUP-PRUFA-4fd13b3cbf595c91b6099da5b2e7345e-8f5b020efdeb4a89b2525f07de977222
Eignakaup fasteignasala & JJ Lögmenn ehf kynna í einkasölu 152,0m2 efrihæð í tvíbýlishúsi Stykkishólmi með mjög tilkomumiklu útsýni yfir Breiðafjarðareyjar og til fjalla.Íbúðin er miðsvæðis í Stykkishólmi, afar vel staðsett þar sem örstutt er í verslun og alla þjónustu.
Tilhögun íbúðarinnar er sem hér segir.
MIÐHÆÐ//FORSTOFA með flísum á gólfi //HOL með parketi, hurð inná gestasalerni/þvottahús//STOFUR eru tvær og með parketi á gólfum og gengið er út á nýjar svalir úr innri stofu// Svefnherbergisgangur með parketi á gólfi, fatahengi og geymsluskáp/búr//SVEFNHERBERGI með parketi á gólfi og eldri innbyggðum skáp//ELDHÚS með ágætri innréttingu og borðkrók, parketflísar á gólfi.
EFRI HÆÐ//STIGI steyptur uppá efri hæð//OPIÐ rými er bíður uppá ýmsa möguleika, parket á gólfi//TVENN SVEFNHERBERGI eru á efri hæð, eru skápar undir súð i öðru þeirra//Gríðarlega fallegt útsýni er af efri hæð til allra átta yfir Stykkishólm, Breiðarfjarðareyjar og til fjalla.//HÁALOFT með lúgu.
Húsið er nýklætt að utan, nýir ofnar og ofnalagnir. Hússjóður á fyrir viðgerð á tröppum.
Inni á eftir að ganga frá ýmsu. Það þarf að laga sólbekki og hurðakarm kring um svalahurð á neðri hæð með meiru. Laga þarf klæðningu á baðherbergi uppi og sparsla og mála veggi í herbergi niðri.
Þetta er eign sem búið að að vinna mikið í en á eftir að klára að innan.
Ásett verð er 64,9 milljónir. Vinsamlegast hafið samband.
Allar nánari upplýsingar veitir Eignakaup í síma 774-4500 & 445-3500 eða jakob@logfraedistofan.is Kaupendur athugið. Ekkert umsýslugjald er tekið af ykkur, né önnur aukagjöld er varðar frágang við kaup ykkar á eigninni nema þið veljið það sjálf.
Við höfum 29 ára reynslu af sölu fasteigna, skipa og aflaheimilda.
Lögfræðistofan JJ Lögmenn ehf hefur verið rekin í 14 ár. Stofan býður uppá alla almenna lögfræðiþjónustu, erfðaskrár, dánarbú, allskonar samningagerð, lögfræði & fjármálaráðgjöf af ýmsum toga.
Við svörum tölvupóstum og fyrirspurnum allan sólahringinn, 24/7. Jafnframt er síminn ávallt opinn. Sími 445-3500 eða 774-4500 mailið er jakob@logfraedistofan.is eða bara jakob@jjl.is
Send email for english version.
Nánari upplýsingar eru veittar í síma 774-4500 eða jakob@jjl.isKostnaður kaupanda:
1. Af gjaldskyldum skjölum skal greiða 0,8% af fasteignamati ef kaupandi er einstaklingur, fyrstukaupendur 0,4% og 1,6% af fasteignamati ef kaupandi er lögaðili.
2. Þinglýsingargjald á hvert skjal er kr. 3.800.
3. Lántökugjald fer eftir verðskrá lánastofnunar hverju sinni.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu er kr. 55.000 m/vsk.
5. Sé um nýbyggingu um að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Skoðunar- og aðgæsluskylda kaupanda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan vill beina því til væntanlegs kaupanda að kynna sér ástand fasteignar vel við skoðun og fyrir tilboðsgerð. Ef þurfa þykir er ráðlagt að leita til sérfræðifróðra aðila. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit þetta er samið af fasteignasala til samræmis við lög um sölu fasteigna og skipa nr. 70/2015. Upplýsingar þær sem koma fram í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, frá seljanda og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eignina til samræmis við upplýsingaskyldu sína sbr. lög um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteignar sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki með berum augum, eins og t.d. lagnir, dren, skólp og þak.