Fasteignaleitin
Skráð 26. ágúst 2024
Deila eign
Deila

Lambeyrarbraut 5 - aukaíbúð möguleg

EinbýlishúsAusturland/Eskifjörður-735
214.9 m2
8 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
54.900.000 kr.
Fermetraverð
255.468 kr./m2
Fasteignamat
41.400.000 kr.
Brunabótamat
87.100.000 kr.
SM
Sigurður Magnússon
Fasteignasali
Byggt 1959
Þvottahús
Garður
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2170307
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Þokkalegt - endurnýjað gler
Þak
Þakjárn endurnýjað
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Tveir inngangar
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Lambeyrarbraut 5, Eskifirði - húsið er laust til afhendingar strax.
Gott og vel staðsett steinsteypt einbýlishús við rólega botnlangagötu, miðsvæðis á Eskifirði í næsta nágrenni við grunnskóla, dagvöruverslun, íþróttahús, bókasafn, leiksvæði og sparkvöll.
Húsið er á tveimur hæðum með fimm svefnherbergjum sem flest eru mjög stór. Mögulegt að skipta húsinu í tvær íbúðir. Er húsið almennt í góðu ástandi og stendur á 600 m² eignarlóð.

Húsið hefur fengið gott viðhald og eru allar raflagnir í húsinu nýjar (2024). Húsið er klætt og einangrað utan frá og stutt er síðan þak var endurnýjað. Innbrenndur litur er á þaki og utanhússklæðningu. Mögulegt að mála klæðninguna ef nýr eigandi hefur áhuga á að breyta um lit. 
Aðalinngangur er á efri hæð, þar eru flísar á forstofu og parket á holi inn af forstofu. Parket er á tveim samliggjandi stofum sem hægt að loka á milli með fallegum tvíbreiðum hurðum.
Í eldhúsi er dúkur á gólfi og eldri innrétting, búr inn af eldhúsi er með dúk á gólfi. Þrjú svefnherbergi eru á efri hæðinni, öll með parket á gólfum. Baðherbergi er flísalagt og þar er baðkar með sturtu. 
Stigi milli hæða liggur úr forstofu á efri hæð og komið er niður í eldhús með dúk á gólfi og eldri innréttingu við einn vegg. Sérinngangur er inn á neðri hæðina og eru flísar á forstofu sem og á litlu baðherbergi inn af forstofu. Á neðri hæð eru tvö afar rúmgóð herbergi með parket á gólfi og glerskápum sem voru fyrir steinasafn. Þvottahús með máluðu gólfi er á neðri hæð. Hitaveita er í húsinu.
Staðfest leyfi frá Fjarðabyggð til að gera bílastæði inni á lóðinni liggur fyrir. 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Lambeyrarbraut 5 aukaíb. möguleg
Lambeyrarbraut 5 aukaíb. möguleg
735 Eskifjörður
214.9 m2
Einbýlishús
815
255 þ.kr./m2
54.900.000 kr.
Skoða eignina Kirkjubraut 59
Bílskúr
Skoða eignina Kirkjubraut 59
Kirkjubraut 59
780 Höfn í Hornafirði
199.1 m2
Einbýlishús
514
281 þ.kr./m2
55.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin