LF-fasteignasala/Lindin fasteignir s. 893-1319 og Þórdís Pála Reynisdóttir löggiltur fasteignasali thordis@lf-fasteignasala.is kynna: Lambeyrarbraut 5, Eskifirði Húsið er laust til afhendingar mjög fljótlega. Mjög rúmgott og vel staðsett tveggja hæða steinsteypt einbýlishús miðsvæðis á Eskifirði. Mögulegt að skipta húsinu í tvær íbúðir. Húsið stendur við rólega botnlangagötu og er í næsta nágrenni við grunnskóla, dagvöruverslun, bókasafn, íþróttahús, leiksvæði og sparkvöll. Örstutt er út í náttúruna og mjög stutt á skíðasvæðið í Oddskarði. Húsið hefur fengið gott viðhald og eru allar raflagnir nýjar (2024), húsið er klætt og einangrað utanfrá og stutt er síðan þak var endurnýjað. Innbrenndur litur er á þaki og utanhússklæðningu. Gengið er upp breiðar tröppur að aðalinngangi. Fallegt járnhandrið er meðfram tröppum og dyrapalli. Komið er inn í ágætlega rúmgóða flísalagða forstofu. Inn úr henni er stigi niður á neðri hæðina. Efri hæðin skiptist í rúmgott hol, 2 samliggjandi stofur með fallegri tvíbreiðri hurð á milli, 3 rúmgóð svefnherbergi, baðherbergi, eldhús og búr. Gott viðarparket er á stofum, holi og svefnherbergjum á efri hæðinni. Í eldhúsi er dúkur á gólfi og falleg eldri innrétting, pláss er fyrir uppþvottavél í eldhúsinu. Búr er inn af eldhúsinu og er það með dúk á gólfi. Baðherbergi er flísalagt, bæði veggir og gólf og þar er baðkar með sturtu. Þegar komið er niður stigann á neðri hæðina er komið beint inn í eldhús með eldri innréttingu. Sérinngangur er inn á neðri hæðina og er lítil útigeymsla við hlið hans. Flísar eru á gólfi forstofu neðri hæðar. Inn úr forstofunni er lítil snyrting með flísum á gólfi. Á neðri hæðinni eru tvö rúmgóð herbergi og er plastparket á gólfum þeirra. Í herbergjunum eru stórir skápar með glerhurðum og var þar rómað steinasafn Sörens og Sigurborgar. Stórt þvottahús með máluðu gólfi er á neðri hæðinni. Þar mætti útbúa góða baðaðstöðu fyrir neðri hæðina. Hitaveita er í húsinu. Staðfest leyfi frá Fjarðabyggð til að gera bílastæði inni á lóðinni liggur fyrir. Húsið stendur á eignarlóð sem skráð er 600 fermetrar.
ÁBENDING: Geymsluskúr í garði er orðinn mjög lélegur.

Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.