Fasteignasalan Hvammur 466 1600
Rimasíða 9 - Vel skipulagt og vel við haldið 5 herbergja einbýlishús á einni hæð og með sambyggðum bílskúr í Síðuhverfi - stærð 198,0 m², þar af er bílskúr skráður 51,2 m²
Eignin skiptist í tvær forstofur, eldhús, sjónvarpshol, borðstofu og stofu í alrými, gang, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, snyrtingu, þvottahús/geymslu og bílskúr.
Forstofa, aðalinngangurinn er framhlið hússins og þar eru flísar á gólfi og filmaður skápur. Útidyrahurðin var endurnýjuð í desember 2022.
Önnur forstofa er á norðurhliðinni og snýr út að bílaplaninu, þar eru flísar á gólfi, hvítfilmaður skápur og endurnýjuð útidyrahurð, desember 2022.
Eldhús, vönduð spónlögð eikar innrétting með dökkri bekkplötu. Ísskápur og uppþvottavél eru innfelld í innréttingu og fylgja með við sölu eignar. Innfelld lýsing í lofti og borðkrókur með glugga til austurs.
Sjónvarpshol er með flísum á gólfi, kamínu, innfelldri lýsingu og nýlegri hurð út á verönd.
Borðstofa og stofa eru í alrými þar sem loft eru tekin upp og gluggar til þriggja átta. Parket er á gólfi.
Svefnherbergin eru fjögur, öll með parketi á gólfi og tvö með hvítum fataskápum.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað, þar eru dökkar flísar á gólfum og gólfhiti og ljósar á veggjum Sérsmíðuð spónlögð eikar innrétting, upphengt wc, handklæðaofn, baðkar og rúmgóð walk-in sturta með innfelldum tækjum. Opnanlegur gluggi og innfelld lýsing í lofti.
Snyrting er inn af þvottahúsinu með flísum á gólfi og veggjum, handlaug, wc og opnanlegum glugga. Veggflísar eru grá málaðar.
Þvottahús og geymsla eru inn af forstofunni, þar eru flísar á gólfi, spónlögð innrétting með stæði fyrir þvottavél og þurrkara í vinnuhæð, hillur og opnanlegur gluggi.
Bílskúrinn er skráður 51,2 m² að stærð. Þar er epoxy á gólfum, tvær göngurhurðar, ein á framhliðinni og önnur til suðurs út á veröndina. Innkeyrsluhurð og hurðaropnari var endurnýjað árið 2022. Innst í bílskúrnum eru tvær geymslur og í annarri er innrétting með vask. Fyrir framan er rúmgott hellulagt bílaplan með hitalögnum í, lokað kerfi. Einnig eru hitalagnir í gönguleið fyrir framan aðalinngang og í gönguleið að heitum potti á veröndinni.
Árið 2016 var steypt um 100 m² verönd með suður og vesturhlið hússins og reistir timbur skjólveggir. Heitur pottur/ skel er veröndinni og heimasmíðað úti eldhús.
Annað
- Gler í gluggum var endurnýjað á árunum 2016-2023.
- Húsið var málað að utan árið 2020.
- Þak var endurnýjað árið 2020, skipt um það timbur sem þurfti, pappa og þakjárn. Led lýsing er í þakskyggni.
- Útidyrahurðar í báðum forstofunum voru endurnýjaðar í desember 2022
- Á baklóðinni er vandaður einangraður geymsluskúr sem fylgir með við sölu eignar.
- Eignin er til afhendingar í október 2026
- Eignin er í einkasölu
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.