Fasteignaleitin
Skráð 24. sept. 2026

Laugarnesvegur 50

EinbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
277.4 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
230.000.000 kr.
Fermetraverð
829.128 kr./m2
Fasteignamat
185.300.000 kr.
Brunabótamat
123.650.000 kr.
Mynd af Vernharð S Þorleifsson
Vernharð S Þorleifsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1926
Garður
Svalir
Heitur pottur
Bílskúr
Sérinng.
Fasteignanúmer
2018708
Landnúmer
104507
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Já
Lóð
100
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Vernharð Þorleifsson lgf og Magga Gísladóttir lgf. hjá RE/MAX  kynna:
Einstaklega glæsilegt einbýlishús með mikin karakter í Laugarnesi.
Eignin hefur verið mikið endurnýjuð á síðustu árum og  lögð hefur verið mikil áhersla á að hvert rými hafi sitt eigið yfirbragð og einkenni.
Húsið stendur á hornlóð með stórum, skjólgóðum og grónum bakgarði. 
Íbúðarhúsið er á þremur hæðum og er skráð 192,3 fm. Í kjallara er 38,9 fm íbúð með sérinngangi sem er í útleigu. Bílskúrinn er 46,2 fm, byggður árið 1966 og hefur verið útbúinn sem íbúð sem einnig er í útleigu.
Næg bílastæði eru í innkeyrslu fyrir framan bílskúr.
Við mælum eindregið með að eignin sé skoðuð nánar í meðfylgjandi þrívíddarskoðun þar sem hægt er að ganga í gegnum öll rými hússins og átta sig vel á skipulagi þess og möguleikum.
Linkurinn inn á 3D
Nánari lýsing eignar
Gengið er inn í anddyri þaðan sem farið er annars vegar upp á miðhæð hússins og hins vegar niður á jarðhæð/kjallara.
Á neðstu hæð er herbergi, geymslurými, þvottahús og gestasalerni með sturtuaðstöðu. Hægt er að ganga beint þar inn. 
Á miðhæð er aðalrými hússins. Þar eru eldhús, borðstofa, stofa og herbergi. Úr rýminu er útgengi á svalir og þaðan hægt að ganga niður í garðinn.
Á efstu hæð er fallegt baðherbergi með bæði sturtu og baðkari, tvö mjög rúmgóð herbergi og fataherbergi sem áður var herbergi en opnað á milli. Auðvelt væri að breyta því aftur og fá þannig þriðja herbergið á hæðinni.
Í risi eru skemmtilegir kringlóttir gluggar í hvorum enda hússins sem gefa rýminu skemmtilegan svip. Þar eru áhugaverðir möguleikar á að útbúa notalegt rými eða herbergi.
Fallegt eikarparket er á gólfum og glæsilegur stigi tengir hæðir hússins saman. Skrautlistar, rósettur og önnur klassísk smáatriði setja sterkan svip á eignina og undirstrika karakter hússins.
Garðurinn er afar skjólgóður og gróinn, hellulagður að hluta og með hita undir hellum og í bílainnkeyrslunni. Lagnir voru lagðar út í garð fyrir heitan pott. Garðurinn er afgirtur og sannkallaður sælureitur. Þar er smáhýsi sem upphaflega var hugsað sem gufubað en hefur ekki verið fullklárað sem slíkt. Tenging er komin í innkeyrsluna fyrir bílarafhleðslu.
Garðurinn snýr til suðvesturs og nýtur góðrar sólar.
Húsið var upphaflega byggt árið 1926 og fagnar því 100 ára afmæli á þessu ári. Um árabil var rekin í húsinu þekkt hverfisverslun sem þjónustaði íbúa svæðisins og margir muna kannski enn eftir.
Þetta er einstaklega heillandi eign með mikla sögu, fallegt yfirbragð og fjölbreytta möguleika. Við sannarlega mælum með henni.
Frekari upplýsingar veita:
Vernharð Þorleifsson lgf.
Sími 699 7372
venni@remax.is
Magga Gísladóttir lgf.
Sími 698 7494
magga@remax.is

 

 
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
06/06/201768.350.000 kr.105.000.000 kr.277.4 m2378.514 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026
Byggt 1966
46.2 m2
Fasteignanúmer
2018708
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
01
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
16.800.000 kr.
Byggt 1926
38.9 m2
Fasteignanúmer
2018708
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
00
Númer eignar
01
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
20.400.000 kr.

Myndir (56)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Bjarmaland 16
a Bjarmaland 16. framan copy.jpg
Skoða eignina Bjarmaland 16
Bjarmaland 16
108 Reykjavík
532.8 m2
Einbýlishús
956
Fasteignamat 384.550.000 kr.
Tilboð
Skoða eignina Laufásvegur 39
Skoða eignina Laufásvegur 39
Laufásvegur 39
101 Reykjavík
130.6 m2
Einbýlishús
523
1021 þ.kr./m2
133.300.000 kr.
Skoða eignina Smáragata 8
Skoða eignina Smáragata 8
Smáragata 8
900 Vestmannaeyjar
268.3 m2
Einbýlishús
836
Tilboð
Skoða eignina Núpahraun 26
Bílskúr
Á einni hæð
Skoða eignina Núpahraun 26
Núpahraun 26
815 Þorlákshöfn
253.7 m2
Raðhús
413
354 þ.kr./m2
89.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin