Fasteignaleitin
Opið hús:07. júlí kl 17:00-17:30
Skráð 2. júlí 2026

Sunnusmári 4

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
69.2 m2
2 Herb.
1 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
65.900.000 kr.
Fermetraverð
952.312 kr./m2
Fasteignamat
62.650.000 kr.
Brunabótamat
44.200.000 kr.
Mynd af Björgvin Þór Rúnarsson
Björgvin Þór Rúnarsson
Fasteignasali
8551544www.primafasteignir.isEignalisti
Garður
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2513659
Landnúmer
114363
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Númer íbúðar
10
Vatnslagnir
Upprunalegt
Raflagnir
Upprunalegt
Frárennslislagnir
Upprunalegar
Gluggar / Gler
Upprunalegt
Þak
Upprunalegt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Hitaveita/gólfhiti
Inngangur
Sameiginlegur
Prima fasteignasala og Björgvin Þór Rúnarsson lgf. kynna í einkasölu eignina Sunnusmári 4 íbúð 310, 201 Kópavogur

Gulfalleg og smekkleg íbúð vel meðfarin staðsett á 3. hæð í lyftuhúsi og er skráð 69,2 m2 en þar af er geymsla 8,8 m2. 
Komið er inn á forstofugang með fataskáp, eldhús er staðsett til vinstri með góðu skápa- og vinnuplássi.
Borðstofa og stofa eru í opnu og björtu samlyggjandi rými, frá borðstofu er útgengt út á svalir sem snúa í suð-austur.
Svefnherbergið er skráð 13,1 m2 er staðsett fyrir enda stofu, með rúmgóðum fataskápum.
Baðherbergi er rúmgott með sturtu og nægu plássi fyrir þvottavél og þurrkara.  

Nánari lýsing: 
Forstofa: parket á gólfi og fataskápur.
Eldhús: parket á gólfi og eldhúsinnrétting með góðu vinnuplássi.
Stofa- og borðstofa: parket á gólfi.
Svefnherbergi: parket á gólfi og rúmgóðir fataskápar.
Baðherbergi: flísar á gólfi og veggjum að hluta, sturta, upphengt salerni, vaskur með innréttingu. Gott pláss fyrir þvottavél og þurrkara við enda baðherbergis.
Geymsla: staðsett í sameign í kjallara. 

Á efstu hæð hússins er sameiginlegur þakgarður, þaðan sem er fallegt útsýni. Þá er fallega hannaður innigarður á milli húsa í Silfursmára með leiktækjum fyrir börn. Aðkoma að húsinu er með besta móti og auðvelt aðgengi að almenningssamgöngum. Sameiginleg vagna- og hjólageymsla staðsett á jarðhæð. Eignin er mjög vel staðsett og er í göngufæri við alla helstu verslun- og þjónustu í Smáralind, heilsugæsluna og þá er stutt í fallegar gönguleiðir í Kópavogsdalnum.  

Nánari upplýsingar veita:
Björgvin Þór Rúnarsson löggiltur fasteignasali / s.8551544 / bjorgvin@primafasteignir.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Væntanlegum kaupendum er bent á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Almennt getur kaupandi ekki borið fyrir sig að ástand eignar sé annað en það sem hann hefði mátt sjá við slíka skoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Almennt um fylgifé íbúðarhúsnæðis:
Til fylgifjár íbúðarhúsnæðis teljast varanlegar innréttingar og búnaður sem annaðhvort er skeytt varanlega við fasteignina eða er sérstaklega sniðinn að henni. Þetta á meðal annars við um fastan búnað og lagnir til hitunnar og vatnsmiðlunar, rafmagnsvirki og leiðslur, loftnet og annan móttökubúnað í eigu seljanda, sem fest eru á fasteign, föst gólfteppi og önnur gólfefni sérstaklega tilsniðin, gluggabúnað, bað- og eldhúsinnréttingar og tæki og vélar sem eru sérstaklega felld inn í innréttingarnar og verða hluti af þeim og aðra innbyggða hluta.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  Nýtt - Eignin er nýbygging.
  Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Yfirlýsing seljanda:
Seljandi/eigandi lýsir því yfir að efni söluyfirlitsins er rétt samkvæmt bestu vitund hans og staðfestir það með undirritun sinni.
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
30/01/202559.100.000 kr.59.900.000 kr.69.2 m2865.606 kr.
30/12/202117.750.000 kr.49.500.000 kr.69.2 m2715.317 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (29)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langalína 15
IMG_6188.jpeg
Skoða eignina Langalína 15
Langalína 15
210 Garðabær
83 m2
Fjölbýlishús
211
902 þ.kr./m2
74.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 íb 303
Vorbraut 14 íb 303
210 Garðabær
68.6 m2
Fjölbýlishús
211
1077 þ.kr./m2
73.900.000 kr.
Skoða eignina Vorbraut 14 íb 203
Opið hús:06. júlí kl 17:00-17:30
Vorbraut 14 íb 203
210 Garðabær
69.6 m2
Fjölbýlishús
211
1033 þ.kr./m2
71.900.000 kr.
Skoða eignina Engihjalli 3
Skoða eignina Engihjalli 3
Engihjalli 3
200 Kópavogur
78.4 m2
Fjölbýlishús
312
736 þ.kr./m2
57.700.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin