Hraunhamar fasteignasala kynnir: Fallegt og einstaklega vel staðsett einbýli á þessum eftirsótta stað í miðbæ Hafnarfjarðar.
Eignin skiptist í kjallara, hæð og ris, samtals 130,7 fm skv. HMS. Eignin skipist m.a. þannig:Aðalhæð/miðhæð: Forstofa, eldhús með ljósri innréttingu, björt
stofa og borðstofa. Inn af stofu er
svefnherbergi sem áður var hluti af stofu, (lítið mál að breyta til baka). Auka forstofa, þar inn af er
gestasnyrting. Frá gestasnyrtingu er lúga niður í kjallara.
Stigi upp á efri hæð.
Rishæð. Hol.
Tvö góð herbergi og þriðja herbergi inn af öðru.
Baðherbergi með salerni, baðkari, sturtuklefa og viðarinnréttingu með handlaug. Tengi fyrir þvottavél. Góður opnanlegur gluggi á baðherbergi. Í holi er lúga upp í manngengt (að hluta)
háaloft sem nýtist vel sem geymsla. Rishæðin er stærri að grunnfleti en skráðir fermetrar segja til um þar sem hún er að hluta til undir súð.
Kjallari er rúmgóður og bjartur með glugga á tvo vegu. Góð lofthæð. Býður upp á mikla möguleika. Utangengt í hann og innangengt frá lúgu á gestasnyrtingu á miðhæð. Í kjallara er
geymsla og rúmgott þvottaherbergi. Timburgólf og gólfdúkur.
Samkvæmt upplýsingum seljanda var húsið málað að mestu leyti að utan ásamt gluggum að utan 2024.
Skjólgóður og fallegur garður á bakvið húsið. Klettaveggur sem afmarkar lóðina og veitir gott skjól en þar við er stétt með góðu rými fyrir setsvæði. Sjarmerandi eign með karakter og sál. Húsið býður upp á mikla möguleika. Einstök staðsetning í göngufæri við miðbæ Hafnarfjarðar og allt það sem hann hefur upp á að bjóða. Nánari upplýsingar veitir:Glódís Helgadóttir löggiltur fasteignasali í s. 659-0510 eða glodis@hraunhamar.is
Helgi Jón Harðarson sölustj. í s. 893-2233 eða helgi@hraunhamar.isSkoðunarskylda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Hraunhamar fasteignasala vill benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga fyrir nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. – kr. 2.700 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. þjónustusamningi
Hraunhamar er elsta fasteignasala Hafnarfjarðar, stofnuð 1983.
Hraunhamar, í fararbroddi í rúm 40 ár. – Hraunhamar.is
Smelltu hér til að fá frítt söluverðmat.
Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.