-Stór timburverönd í suður
-Sérinngangur á jarðhæð
-Sér bílastæði
-Stutt í skólaÍbúðin er 128,6 fm samkvæmt HMS.
Vel skipulögð fjögurra herbergja íbúð á sérhæð með sérinngangi í steinuðu tvíbýli / keðjuhúsi í Vatnsendahverfi.
Flæðandi parket er í íbúðinni en baðherbergi, forstofa og þvottahús eru flísalögð.
Stór afgirt timburverönd með góðri útigeymslu, útgengt úr borðstofu.
Fallegt útsýni er af pallinum yfir Elliðavatn og upp til Bláfjalla og að Hellisheiði.
Vatnsendaskóli er rétt handan við pallinn og stutt er í matvöruverslun, heilsurækt, bakarí, golfhermi og aðra þjónustu í Ögurhvarfi.
Góð eign á góðum stað í góðu hverfi sem vert er að gefa góðan gaum.
Nánari upplýsingar veita:Páll Pálsson Lgf. í S:775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
Ævar Jóhanns Lgf. s: 861-8827 eða aj@palssonfasteignasala.isNánari lýsing:Gengið er inn í flísalagða
forstofu með stórum hvítum loftháum fataskáp.
Svefnherbergi er inn af forstofu, parketlagt með viðarlituðum loftháum fataskáp.
Annað svefnherbergi er á vinstri hönd. Það er einnig parketlagt með viðarlituðum fataskáp.
Hjónaherbergið er rúmgott og parketlagt með stórum fataskáp.
Á gangi er baðherbergi, þvottahús og geymsla.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf, gólfhiti, útbúið baðkari og nýlegum sturtuklefa. Nýleg viðarlituð vaskinnrétting með góðu skúffu og skápaplássi og lýsingu yfir spegli. Upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottahús er flísalagt með tengi fyrir þvottavél og þurrkara og veggföstum hillum.
Í eldhúsinu er gott skápapláss þar sem neðri skápar og skúffur mynda U og efri skápar eru loftháir. Bakaraofn er í vinnuhæð og háfur yfir helluborði. Borðplata nær framyfir skápa og nýtist sem barborð.
Eldhús, borðstofa og stofa flæða saman í einu stóru alrými.
Borðstofa er björt með hornglugga og útgengt út á stóra sólríka og afgirta timburverönd sem snýr í suðurátt.
Stofa er rúmgóð og parketlögð.
Geymslupláss í eigninni er gott. Geymsla innan íbúðar, geymsla á móti íbúðinni og að auki útigeymsla á pallinum.
Með eigninni fylgir glæný tesla hleðslustöð eigninni og upphitað bílastæði (tvö sér stæði fylgja og annað þeirra er upphitað)
www.eignavakt.iswww.verdmat.is Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.