Fasteignaleitin
Skráð 17. okt. 2026

Sýslumannshúsið að Kornsá

EinbýlishúsNorðurland/Blönduós-541
213.7 m2
7 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
110.000.000 kr.
Fermetraverð
514.740 kr./m2
Fasteignamat
88.650.000 kr.
Brunabótamat
121.550.000 kr.
Mynd af Sigrún Gréta Helgadóttir
Sigrún Gréta Helgadóttir
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1879
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2135793
Landnúmer
191660
Húsgerð
Einbýlishús
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
3
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurbyggt 2000-2014
Raflagnir
Endurbyggt 2000-2014
Frárennslislagnir
Endurbyggt 2000-2014
Gluggar / Gler
Endurbyggt 2000-2014
Þak
Endurbyggt 2000-2014
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Rafmagn
Inngangur
Sérinngangur
Byggingarstig
7 - Fullgerð bygging
Sigrún Gréta hjá RE/MAX kynnir einstakt 213,7 m2 hús með sögulegt gildi að Kornsá í Vatnsdal, Áshreppi, A-Húnavatnssýslu. Sýslumannshúsið að Kornsá er frá 1879, en var endurnýjað að stórum hluta á árunum 2000-2014 í samvinnu með Minjastofnun. Húsið er um 80 m2 að grunnfleti og er á þremur hæðum. Jarðhæð og 1. hæð eru um 160 m2 og rishæð 50 m2. Úr húsinu er útsýni yfir Vatnsdalinn og Vatnsdalsánna (laxá) sem svo rennur í Húnavatn. Steinhleðslulaug er á lóðinni.
Innbú og tæki geta fylgt.
Allar frekari upplýsingar um eignina veitir Sigrún Gréta í síma 864-0061 / sigrun@remax.is 


Eignin skiptist í forstofu, borðstofu, stofu, eldhús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi og geymslur. Eignin er skráð hjá Húsnæðis- og mannvirkjastofnun 213,7 m2.

FRÉTT Í ÁGÚST 2026 -FALLEGASTA HÚS Á ÍSLANDI!

SMELLTU HÉR FYRIR NÁNARI UPPLÝSINGAR UM EIGNINA


Smelltu hér til að fá söluyfirlit strax

Nánari lýsing húss:
Jarðhæð, 80 fermetrar:
Opið rými og þvottaaðstaða, panilklæddur, bjartur og fallegur.
1. hæð, 80 fermetrar:
Stofa, borðstofa, eldhús, svefnherbergi, anddyri, salerni og miðrými.
Rishæð: 50 fermetrar
Þrjú svefnherbergi, hol, og fjögur falleg kames sem nýst geta sem fataherbergi eða geymslur.
Húsið á lóðinni með torfþakinu er nýtt sem geymsla.

Húsið byggði Lárus Blöndal Sýslumaður. Þegar það var endurbyggt á árunum 2000 til 2014 var gætt að upprunalegum arkitektúr og byggingarstíl svo gamli stíllin og sjarmi hússins gæti notið sín áfram. Hurðir og dyraumbúnaður er upprunalegt, gólf að hluta og spjaldþil á veggjum. Húsið hefur bæði byggingarsögulegt og menningarsögulegt gildi. Staðurinn er í miðri hringiðu sögunnar um síðustu aftöku á Íslandi, þar sem Agnes Magnúsdóttir og Friðrik Sigurðsson voru hálshöggvin. Þess má geta að bíómynd með m.a. Baltasar Kormáki í aðalhlutverki, “Agnes” fjallar um þessa harmþrungnu sögu. Einnig samdi Bubbi Morthens lag um ódæðið. Staðurinn er einnig sögusvið metsölubókarinnar Náðarstund eftir Ástralska rithöfundin Hannah Kent.
Landnámssetrið í Borgarnesi var með sýninguna "Öxi - Agnes og Friðrik" árið 2020, en þá voru liðin 190 ár frá síðustu aftökunni á Íslandi. Aftakan átti sér stað að Þrístöpum og má sjá staðsetningu þess sögufræga staðar hér.
Rafmagnskynding er í húsinu og fyrir laugina og er það niðurgreitt.
Landeigandi hefur forkaupsrétt að íbúðarhúsinu.
3ja tíma akstur frá Reykjavík.
Hálftíma akstur á Blönduós þar sem alla þjónustu er að finna.
Hér eru gagnlegar upplýsingar frá Húnabyggð.


-Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
-Hafðu samband og við verðmetum eignina þína þér að kostnaðarlausu.
-Sigrún Gréta löggiltur fasteignasali í síma 864 0061 eða sigrun@remax.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% fyrir fyrstu kaupendur) og 1,6% fyrir lögaðila. Reiknast af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - 3.800 kr. af hverju skjali.
3. Lántökugjald eftir gjaldskrá lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðum lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu kr. 69.900.-
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Langholt 13
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Skoða eignina Langholt 13
Langholt 13
230 Reykjanesbær
193,6 m2
Einbýlishús
614
567 þ.kr./m2
109.700.000 kr.
Skoða eignina SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia
Bílastæði
Hleðslustöð
SPÁNAREIGNIR - Santa Rosalia
Spánn - Costa Blanca
228 m2
Einbýlishús
433
333 þ.kr./m2
75.900.000 kr.
Skoða eignina Víðidalur 3
Bílskúr
Á einni hæð
Heitur pottur
Opið hús:21. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Víðidalur 3
Víðidalur 3
260 Reykjanesbær
232,6 m2
Einbýlishús
525
597 þ.kr./m2
138.900.000 kr.
Skoða eignina Dvergholt 5
Á einni hæð
Skoða eignina Dvergholt 5
Dvergholt 5
220 Hafnarfjörður
194,1 m2
Raðhús
624
636 þ.kr./m2
123.500.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin