Virkilega huggulegt 7 herbergja raðhús í Seljahverfinu í Reykjavík.
BÓKIÐ EINKASÝNINGU MEÐ ÞVÍ AÐ SENDA PÓST Á ARNI@PALSSONFASTEIGNASALA.IS
* Frábær fjölskyldueign
* 5 svefnherbergi og tvær stofur
* Verönd með heitum potti í bakgarði
* Stæði í bílskýliEIGN SEM ER VERT AÐ SKOÐA!
Nánari upplýsingar veita:
Árni B. Kristjánsson B.A í lögfræði / Lgf í síma nr 616-2694 arni@palssonfasteignasala.is
www.eignavakt.is
www.verdmat.is Samkv. Þjóðskrá Íslands er eignin skráð 201,6 m2. þar af er stæði í bílskýli skráð 24 m2.
Nánari lýsing á eign:
1. hæð.
Forstofa er flísalögð með fataskáp.
Gestasalerni inn af forstofu.
Eldhús og borðstofa í opnu og björtu rými með nýlegu parketi á gólfum. Hvít stór innrétting með innbyggðum tækjum.
Við borðstofu eru tvö rúmgóð svefnherbergi með nýlegu parketi á gólfi. 2. hæð.
Rúmgóð stofa með útgengi út á svalir.
Búið er að útbúa auka herbergi á hæðinni, en auðvelt að breyta því til baka. Góðar
geymslur undir súð. Nýlegt teppi er á stiga.
Kjallari.
Rúmgott
sjónvarpshol er í kjallara.
Geymslu er búið að breyta í
fataherbergi með fatahengi og kommóðum.
Tvö svefnherbergi eru á hæðinni, bæði með nýlegu parketi á gólfum og góðir fataskápar í hjónaherbergi.
Þaðan er útgengt út á pall þar sem er heitur pottur og geymsluhús. Baðherbergið er fallegt, flísalagt í hólf og gólf. Baðkar með sturtu.
Rúmgott
þvottahús er í kjallara.
Bílastæði í bílskýli er skráð í heildarstærð hússins, 24 fm. Þar er þvottaðaðstaða fyrir bíla.
Þak endurbætt og hús málað og múrað árið 2018.
Nýlegt parket á gólfum.
Nýlegir gluggar vestan meginn í húsinu.
Frábær staðsetning fyrir fjölskyldufólk - leiksvæði fyrir utan hús og skólar og leikskólar í nágrenninu.Góð ráð fyrir kaupendur / seljendurGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: 1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).
2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.