Fasteignaleitin
Skráð 25. maí 2026

SPÁNAREIGNIR - Villamartin

FjölbýlishúsÚtlönd/Spánn/Costa Blanca
94 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
40.600.000 kr.
Fermetraverð
431.915 kr./m2
BH
Berta Hawkins
Garður
Bílastæði
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
700250526
Landnúmer
0
Húsgerð
Fjölbýlishús
Númer hæðar
0
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Vatnslagnir
nýtt
Raflagnir
nýtt
Frárennslislagnir
Nýtt
Gluggar / Gler
nýtt
Þak
nýtt
Lóðarréttindi
Eignarlóð
Svalir
Upphitun
Kæling/hiti
Inngangur
Sameiginlegur
SPÁNAREIGNIR KYNNIR:
*GLÆSILEG NÝLEG 3. HERB. ÍBÚÐ* GÓÐAR SUÐURSVALIR* *SÉR BÍLASTÆÐI* *FRÁBÆR STAÐSETNING*


Vönduð 3ja herb. íbúð á frábærum stað í Villamartin, ca. 50 mín. akstur frá Alicante flugvelli. 5 mín. gangur á laugardagsmarkaðinn, 20 mín. göngufæri á fallega strönd og 15 mín. göngufæri í La Zenia Boulevard, nýju og flottu verslunarmiðstöðina. Örstutt í Los Dolses þjónustukjarnann, þar sem er gott úrval veitingastaða og verslana. Gróið og fallegt umhverfi. 

Einstakt tækifæri til að eignast nýlega og flotta íbúð á fínu verði í frábæru umhverfi.

Allar upplýsingar veitir Berta Hawkins, lögg. fasteignasali, í síma 0034 615 112 869 eða berta@spanareignir.is

Nánari lýsing:
Um er að ræða lyftuhús á 4 hæðum með stórum og glæsilegum sameiginlegum sundlaugargarði. Íbúðin er 94 fm á 2. hæð, með tveimur svefnherbergjum og tveimur baðherbergjum, góðri stofu/borðstofu og fallegu eldhúsi með hvítri háglans innréttingu. Rúmgóðar suðursvalir með útsýni yfir sundlaugargarðinn. Falleg hönnun og vandaðar innréttingar. Góð sameign og sér bílastæði á lóð. 

Húsið er byggt 2023 og allt er sem nýtt.

Falleg hvít sandströnd sem liggur að Miðjarðarhafinu er í stuttu göngufæri og hefur hún fengið BLUE FLAG viðurkenninguna. Þar eru fallegar gönguleiðir og skemmtilegt “promenaði” er meðfram ströndinni sem býður upp á skemmtilegar gönguferðir.

Fjölbreytt úrval verslana og veitingastaða í örstuttu göngufæri, t.d. í Los Dolces og La Zenia Boulevard, sem ný og glæsileg miðstöð verslana, veitingastaða og fjölbreyttrar afþreyingar. Alicante flugvöllur er í ca. 50 mín akstursleið. Miðborg Torrevieja er í ca. 15 mín. akstursleið og er þar úrval verslana og veitingastaða, bátahöfn og fleira. Fjölbreytt úrval golfvalla er í nágrenninu, t.d. Villamartin, Las Ramblas, Campoamor, Las Colinas, La Finca of fleiri. Stutt er í dýragarðinn í Elche.

Hér er um einstakt tækifæri að ræða til að eignast nýlega og vandaða íbúð á frábærum stað, stutt frá öllu því sem gerir dvölina á Spáni skemmtilega.

Verð: 280.000 Evrur + kostn. (ISK. 40.600.000 gengi 1Evra/145 ISK)

Við höfum selt fasteignir á Spáni síðan 2001. Tryggir þekkingu, reynslu og öryggi.
Sjá nánar um fasteignakaup á Spáni á heimasíðunni okkar: www.spanareignir.is
Eitt besta loftslag í heimi samkvæmt Alþjóða heilbrigðistofnunni, WHO.

Mögulegt er að fjármagna hluta kaupverðs með láni frá spænskum banka með hagstæðum vöxtum.

Kostnaður við kaupin: 9% IVA (spænskur söluskattur) af kaupverði eignarinnar. Auk þess má gera ráð fyrir ca. 3% kostnaði vegna stimpilgjalda og annars kostnaðar við kaupin, þ.e. samtals getur kostnaður vegna kaupa á fasteign á Spáni því farið upp í ca. 12%.

Eiginleikar: nýleg eign, sameiginlegur sundlaugargarður, air con, sér bílastæði, 
Svæði: Costa Blanca, Villamartin,
Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Fasteignanúmer
700250526

Myndir (27)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Vetrarbraut 2 - íbúð 304
Bílastæði
Opið hús:25. maí kl 14:00-14:30
Vetrarbraut 2 - íbúð 304
210 Garðabær
172.3 m2
Fjölbýlishús
413
1015 þ.kr./m2
174.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 2 - íbúð 305
Bílastæði
Opið hús:25. maí kl 14:00-14:30
Vetrarbraut 2 - íbúð 305
210 Garðabær
79.8 m2
Fjölbýlishús
211
1064 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 4 - íbúð 314
Bílastæði
Opið hús:25. maí kl 14:00-14:30
Vetrarbraut 4 - íbúð 314
210 Garðabær
79 m2
Fjölbýlishús
312
1087 þ.kr./m2
85.900.000 kr.
Skoða eignina Vetrarbraut 4 - íbúð 409
Bílastæði
Opið hús:25. maí kl 14:00-14:30
Vetrarbraut 4 - íbúð 409
210 Garðabær
470.8 m2
Fjölbýlishús
423
626 þ.kr./m2
294.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin