STOFAN FASTEIGNASALA kynnir virkilega glæsilegt og vandað parhús með innbyggðum bílskúr við Hádegisskarð 17, í Skarðshlíð, Hafnarfirði.
Húsið er skráð 199,1 fm skv. HMS, þar af er bílskúr 26,1 fm. Einstaklega gott og vel skipulagt fjölskylduhús.Tvennar svalir
Skóli og leikskóli í göngufæri
Nýlegt harðparket og flísar á öllum gólfum
Fallegt útsýni og gólfsíðir gluggar
Aukin lofthæð
Hleðslustöð fyrir rafmagnsbíl
Mikið skápa og geymslupláss
Sérsmíðaðar innfelldar hurðir
Free@Home ljósastýring á öllum ljósum (hægt að stjórna með appi)Komið er inn í húsið á flísalagðan stigapall þaðan sem gengið er á efri og neðri hæð. Þar er rúmgott
svefnherbergi með gluggum á tvo vegu og mikilli lofthæð, fataskápur er í herberginu.
Þvottahús er með nýrri innréttingu og skolvaski. Úr þvottahúsi er svo gengt inn í bílskúr.
Bílskúrinn er með rúmgóðu millilofti og miklu skápaplássi.
Sjálfvirkur opnari er á bílskúrshurð og hleðslustöð fyrir utan, lakkað steingólf.
Efri hæðin er opin og björt með stórum gluggum, mikilli lofthæð og innfelldri LED lýsingu.
Stofa / borðstofa og
eldhús flæða fallega saman í eina heild. Nýleg borðplata, innbyggður ísskápur, spanhelluborð, háfur, ofn og combi ofn í vinnuhæð ásamt góðum búrskáp og innbyggðri uppþvottavél. Dornbracht blöndunartæki.
Á hæðinni er einnig fallegt
baðherbergi flísalagt í hólf og gólf með sturtu, vegghengdu salerni, innréttingu og vönduðum tækjum frá Vola.
Neðri hæð er með
þremur
svefnherbergjum, einu
baðherbergi og rúmgóðu
holi. Svefnherbergin eru öll rúmgóð með nýlegu harðparketi á gólfum.
Hjónaherbergið er sérstaklega rúmgott með
fataherbergi inn af.
Baðherbergið er glæsilegt með vegghengdu salerni, frístandandi baðkari, sturtu, innréttingu og vönduðum Vola blöndunartækjum.
Húsið er staðsteypt með einhalla þaki, Einangrað að innan og með hita í gólfum.
Að utan er húsið múrað og málað, gras í garði og bílaplan steypt og slípað með snjóbræðslukerfi.
Inntaksrými hússins er rúmgott og nýtist einnig sem geymsla.
Sjónvarpsholi neðri hæðar var breytt í svefnherbergi og nýtt gólfefni sett á alla hæðina samtímis fyrir u.þ.b 2 árum, nýir fataskápar í öll barnaherbergi og eldhúsinnrétting stækkuð.
Húsið er frábærlega staðsett í þessu nýlega og fjölskylduvæna hverfi, í göngufæri við skóla og leikskóla. Örstutt er í íþróttamiðstöð Hauka og Ásvallalaug og liggur göngustígur beina leið þangað. Útivistarsvæði allt í kring.
Allar nánari upplýsingar um eignina veitir
Atli Þór í síma 699-5080, atli@stofanfasteignir.is og Guðný Ósk í síma 866-7070, gudny@stofanfasteignir.isGjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8%(einstaklingar) 1.6% (lögaðilar) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Nánari upplýsingar á heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv.gjaldskrá.