RE/MAX og Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, kynna í einkasölu fallega og rúmgóða þriggja herbergja íbúð á fyrstu hæð að Holtsvegi 16. Virkilega vel skipulögð íbúð með stóru alrými. Stór svefnherbergi með góðum skápum. Samkvæmt HMS er birt flatarmál eignarinnar 108,5 fm, þar af er íbúðin 100,1 fm og geymslan 8,4 fm.
** Innréttingar íbúðar voru hannaðar af innanhússhönnuðunum Berglindi Berndsen og Helgu Sigurbjarnadóttur. Allir skápar ná upp í loft.
** Vel skipulögð íbúð með stóru alrými og svefnherbergjum.
Íbúðin skiptist í eldhús/borðstofu, stofu, baðherbergi með þvottaaðstöðu, tvö svefnherbergi og geymslu í sameign.
Nánari lýsing:
Anddyri: Parket á gólfi og fataskápur.
Eldhús/borðstofa: Falleg eldhúsinnrétting. Helluborð, háfur og bakaraofn í vinnuhæð og vaskur. Falleg eyja skilur að borðstofu og eldhús.
Stofa: Stofan er björt með mikið af gluggum. Út frá stofunni er gengið út á rúmgóðar suð-vestur svalir.
Hjónaherbergi: Parket á gólfi og fataskápur. 18,7 fm.
Barnaherbergi: Parket á gólfi og fataskápur. 13,6 fm.
Baðherbergi: Falleg baðinnrétting. Sturta með glerþil og upphengt salerni. Góð aðstaða er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherberginu og eru vélarnar í vinnuhæð. Flísar á gólfi og veggjum að hluta.
Geymsla: Staðsett í sameign hússins, 8,4 fm.
Hjóla- og vagnageymsla: Staðsett í sameign hússins.
Húsið:Fallegt lyftuhús byggt árið 2016. Aðeins tvær íbúðir á hæðinni. Lóðin er vel hirt með tyrfðum flötum, stéttum með snjóbræðslu, kvöldlýsingu og gróðri þess á milli. Rafhleðslustaurar á lóðinni. Staðsetning er virkilega góð þar sem stutt er í verslanir, veitingastaði, kaffihús, leikskóla, grunnskóla og glæsileg útivistarsvæði. Oddur golfvöllur, Urriðavatn og Heiðmörk í göngufjarlægð. Staðsetning í lokuðum rólegum botnlanga.
Umhverfið:Húsið er í Urriðaholti í Garðabæ sem er einstakt og nýstárlegt hverfi. Umkringt óspilltri náttúru en um leið í nálægð við góðar samgönguæðar og sérlega vel staðsett innan höfuðborgarsvæðisins. Í jaðri hverfisins eru helstu útivistarsvæði höfuðborgarsvæðisins, ósnortin náttúra og einn glæsilegasti golfvöllur landsins.
Allar frekari upplýsingar veitir:
Þorsteinn Yngvason, lögmaður / löggiltur fasteignasali, í síma 696 0226 eða thorsteinn@remax.is