HESTAVAÐ 3, 110 REYKJAVÍK
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIRÍ einkasölu bjarta og rúmgóða
124,6 m², fjögurra herb. endaíbúð á 2. hæð með stæði í lokaðri bílageymslu merkt 01B07, í góðu lyftuhúsi við Hestavað 3 í Norðlingaholti í Reykjavík.
Íbúðin er vel skipulögð með þremur svefnherbergjum, björtu og opnu stofu- og eldhúsrými, svölum og þvottaaðstöðu innan íbúðar. Eigninni fylgja einnig sérgeymsla og bílastæði í lokaðri bílageymslu.
MAKASKIPTI Á MINNI EIGN KOMA TIL GREINA.Seljendur eru opnir fyrir því að skoða minni fasteign sem hluta af kaupverði. Þeir eru sveigjanlegir varðandi staðsetningu og koma eignir á höfuðborgarsvæðinu sem og í nágrenni þess til greina.
Fastanúmer: F2283817
Ásett verð: 84.900.000 kr.
NÁNARI UPPLÝSINGAR OG BÓKUN SKOÐUNARBenedikt Ólafsson – löggiltur fasteignasali og leigumiðlariSími: 661 7788 | Netfang:
bo@stofnfasteignasala.is*Smelltu hér til að skoða myndband um eignina**Smelltu hér til að sækja söluyfirlit*HELSTU KOSTIR EIGNARINNAR- Rúmgóð 124,6 m² fjögurra herbergja endaíbúð á annarri hæð.
- Þrjú svefnherbergi og björt stofa með opnu eldhúsi og borðstofu.
- Svalir og góð birta í helstu rýmum.
- Þvottaaðstaða innan íbúðar.
- Sérgeymsla og bílastæði í lokaðri bílageymslu.
- Fjölskylduvænt hverfi, stutt í Rauðavatn, Heiðmörk og þjónustu.
EIGNIN SKIPTIST ÍForstofu, hol, stofu og borðstofu, eldhús, hjónaherbergi, tvö svefnherbergi, baðherbergi, þvottaaðstöðu innan íbúðar og svalir. Auk þess fylgja eigninni sérgeymsla og bílastæði í lokaðri bílageymslu.
NÁNARI LÝSINGFORSTOFA OG HOLForstofa með aðstöðu fyrir yfirhafnir og skó. Þaðan er gengið inn í hol sem tengir saman helstu rými íbúðarinnar.
ELDHÚSBjart eldhús í opnu sambandi við stofu og borðstofu. Viðarinnrétting með góðu skápaplássi og eyju með helluborði og háfi. Eldhúsið er vel staðsett gagnvart borðstofu og stofu.
STOFA OG BORÐSTOFABjört og rúmgóð stofa með góðu plássi fyrir setustofu og borðstofu. Opið skipulag við eldhúsið gefur rýminu skemmtilegt yfirbragð og góða nýtingarmöguleika.
Stórir gluggar hleypa góðri birtu inn og útgengt er á svalir frá stofunni.
HJÓNAHERBERGIRúmgott herbergi með fataskápum og góðu plássi fyrir hjónarúm.
SVEFNHERBERGI IIBjart og vel nýtanlegt herbergi sem hentar sem barnaherbergi, gestaherbergi eða vinnuherbergi.
SVEFNHERBERGI IIIHerbergi sem hefur verið nýtt sem setustofa og býður upp á fjölbreytta nýtingarmöguleika eftir þörfum.
BAÐHERBERGIFlísalagt baðherbergi með baðkari og sturtuaðstöðu, salerni og innréttingu með handlaug.
ÞVOTTAHÚSInnan íbúðar með plássi fyrir þvottavél og þurrkara ásamt hillu- og geymsluaðstöðu.
SVALIRSvalir með útsýni yfir nærliggjandi byggð og umhverfi.
SÉRGEYMSLA OG BÍLAGEYMSLAÍbúðinni fylgir sérgeymsla í sameign og bílastæði í lokaðri bílageymslu.
SAMEIGNAðkoma að íbúðinni er um lokaðan stigagang með lyftu. Í sameign er einnig aðstaða fyrir hjól og barnavagna.
FRAMKVÆMDIR Á HÚSINU Á SÍÐUSTU ÁRUMSamkvæmt fyrirliggjandi upplýsingum var húsið múrviðgert og málað árið 2021 og svalir við stigagang múrviðgerðar árið 2024.
STAÐSETNINGHestavað 3 er í Norðlingaholti, vinsælu og fjölskylduvænu íbúðahverfi í Reykjavík.
Stutt er í skóla, leikskóla, grenndarkjarna og helstu þjónustu. Náttúruperlurnar Rauðavatn og Heiðmörk eru í næsta nágrenni og bjóða upp á fjölbreytta möguleika til útivistar og hreyfingar allt árið.
ENGLISHBright and spacious 124.6 m², four-room end apartment on the second floor in Norðlingaholt, Reykjavík. The property features three bedrooms, an open-plan living and dining area with kitchen, a balcony, laundry facilities within the apartment, private storage and parking in an enclosed garage.
The property is conveniently located near schools, local services and the popular outdoor recreation areas of Rauðavatn and Heiðmörk.
POLSKIJasne i przestronne czteropokojowe mieszkanie narożne o powierzchni 124,6 m², położone na drugim piętrze w dzielnicy Norðlingaholt w Reykjavíku.
Mieszkanie obejmuje trzy sypialnie, salon połączony z jadalnią i kuchnią, balkon, miejsce na pralkę i suszarkę w mieszkaniu, komórkę lokatorską oraz miejsce parkingowe w zamkniętym garażu.
W pobliżu znajdują się szkoły, lokalne usługi oraz popularne tereny rekreacyjne Rauðavatn i Heiðmörk.
ERT ÞÚ AÐ HUGSA UM AÐ SELJA?Okkur hjá STOFN Fasteignasölu vantar eignir af öllum stærðum og gerðum á skrá.
Hafðu samband og fáðu faglega, persónulega ráðgjöf.
STOFN Fasteignasala – Setjum þig í fyrsta sætiðHeilindi – Dugnaður – Árangur