Miklaborg kynnir: Rúmgóða og vönduða 2ja herbergja íbúð á jarðhæð með sérlega góðu aðgengi og stórum sólpalli við Naustavör 2 í Kópavogi. Um er að ræða afar bjarta og vel skipulagða 83,1 fm íbúð á jarðhæð í vönduðu lyftuhúsi sem byggt var árið 2015 af Bygg ehf. Frábært aðgengi – Íbúðin var sérstaklega hönnuð og byggð með hliðsjón af ýtrustu kröfum um gott aðgengi. Öll rými íbúðarinnar eru einstaklega rúmgóð og breidd á dyraopum og innanhúshurðum er aukin og aðgengi jafnt innan íbúðar sem og úr bílakjallara er til fyrirmyndar.
Eignin skiptist í forstofu, svefnherbergi, baðherbergi, eldhús, stofu, borðstofu, þvottahús, sólpall, geymslu og stæði í bílakjallara.
Eignin getur verið laus við kaupsamning.
Bókaðu skoðun hjá Óskari Sæmann í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is
Nánari lýsing
Komið er inn í forstofu með stórum fataskáp. Mjög rúmgott svefnherbergi með fataskáp. Stofa / Borðstofa með útgengi út á stóran sólpall til suð-austurs. Eldhús með innréttingu úr eik og hvítum efri skápum, helluborði, gufugleypi, ofni í vinnuhæð, innbyggðum örbylgjuofni og uppþvottavél og plássi fyrir ísskáp. Innaf eldhúsi er þvottahús með flísum á gólfi, innréttingu með vask og plássi fyrir þvottavél. Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum að hluta, eikar innréttingu með vask og spegli, upphengdu salerni, handklæða ofni og walk-in sturtu með glerskilrúmi. 7,2 fm geymsla er á sömu hæð. Stæði í bílakjallara fylgir þar sem búið er að koma fyrir hleðslustöð fyrir rafbíla.
Góflefni íbúðarinnar er parket nema á baðherbergi og þvottahúsi þar sem eru flísar.
Nánari upplýsingar veitir
Óskar Sæmann Axelsson löggiltur fasteignasali í síma 691-2312 eða osa@miklaborg.is
| Dagsetning | Fasteignamat | Kaupverð | Stærð | Fermetraverð | Nothæfur samningur |
|---|---|---|---|---|---|
| 15/07/2015 | 28.650.000 kr. | 28.500.000 kr. | 83.1 m2 | 342.960 kr. | Já |
| Götuheiti | Pnr. | Póstnr. | m2 | Verð |
|---|---|---|---|---|
200 | 72,8 | 61,5 | ||
108 | 106,4 | 114,9 | ||
108 | 104,1 | 104,9 | ||
201 | 70,5 | 71,9 | ||
230 | 72,2 | 39,9 | ||
603 | 88,8 | 63,9 |