LIND fasteignasala og Helga Pálsdóttir löggiltur fasteignasali kynnir glæsilega 4-5 herbergja útsýnisíbúð á 1.hæð auk bílskúrs í fjögurra íbúða fjölbýlishúsi á vinsælum stað við Fiskakvísl í Árbænum.
Eignin er skráð hjá HMS samtals 172,3 m2 og skiptist í íbúð á hæð 121,6 m2, herbergi í kjallara./geymsla, 17 m2 og bílskúr 33,7 m2Íbúðin skiptist í hol, þvottahús, eldhús, baðherbergi, þrjú svefnherbergi, stofu og borðstofu. Að auki er svo góð geymsla í kjallara með gluggum sem hægt er að nýta sem herbergi.
Helstu endurbætur
* 2014 var eldhúsið endurnýjað
* 2015 var baðherbergið endurnýjað
* 2020 var skipt um þakjárn ,þakkant og settar nýjar þakrennur.
* 2021 var skipt um allar innhurðar
* 2021 var lagt vandað Pergo parket á alla íbúðina fyrir utan baðherbergi
* 2025 var skipt um stofugluggana og glugga á geymslu/herbergi.
* 2025 sett ný handrið á svalir og útistiga
* 2026 var skipt um teppi á stigagangi og hann málaður
* 2026 var öll sameign í kjallara máluðNánari lýsing eignar.Hol með innbyggðum fataskáp.
þvottahús er innaf holi með innréttingu og vaski. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Eldhús með með fallegri innréttingu með góðu skúffu og skápaplássi, granít borðplötu með innfeldum vaski, Bosch spanhelluborði með Elica háfi yfir og góðum sjálhreinsandi ofni frá Gorenje. Gert er ráð fyrir ísskáp og frysti i innréttingu, stór tækjaskápur með granítborðplötu, lítið eldhúsborð með granítborðplötu .borðkrókur er við útsýnisglugga.
Hjónaherbergi er með fataskáp með rwnnihurðum og útgengi er frá því út á svalirnar.
Tvö rúmgóð barnaherbergi , útgengi frá öðru herberginu út á svalir í norður með útsýni, þar sem m.a. Esjan, Akrafjall og Skarðsheiðin blasa við. Fataskápur í örðu þeirra.
Baðherbergið er flísalagt í hólf og gólf og þar er góð walk-in sturta, upphengt salerni, innrétting og handklæðaofn.
Björt og samliggjandi stofa og borðstofa með fallegum arni. Útgengt út á stórar flísalagðar suðursvalir.
Stór sérgeymsla /herbergi er í kjallara sem hægt er að nýta sem herbergi, parket á gólfi og opnanlegur gluggi.
Stór og góður bílskúr með hita, vatni og rafmagni, sjálfvirkum hurðaopnara og innréttingu.
Bílaplanið er hellulagt með snóbræðslu.Mjög góð staðsetning efst í Ártúnsholtinu þar sem stutt er í þjónustu af ýmsu tagi svo sem verslanir, skóla, leikskóla ofl. Allar upplýsingar um eignina veitir Helga Pálsdóttir fasteignasali í síma 822 2123 eða helga@fastlind.is