Fasteignasalan Hvammur - 466-1600 - gunnar@kaupa.is
Keilusíða 6 íbúð 201- vel skipulögð og björt 4ra herbergja íbúð á annari hæð á góðum stað í Síðuhverfi - stærð 108,9 m².
Eignin skiptist í forstofu/hol, stofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús og sér geymslu í sameign.Lýsing eignar:
Forstofa/hol er með parketi á gólfi og fatahengi.
Stofan er rúmgóð með parketi á gólfi og hurð út á steyptar vestur svalir.
Eldhúsið er með flísum á gólfi, góðum borðkrók, ljósri innréttingu með miklu skápa- og skúffuplássi, flísum á milli skápa og gluggum til 3ja átta.
Svefnherbergin eru þrjú öll með parketi á gólfum og fataskápar í tveimur þeirra.
Baðherbergið er með flísum á gólfi og hluta veggja, ljósri innréttingu, baðkari með sturtutækjum, wc og hurðaropi yfir í þvottahús.
Þvottahús er inn af baðherbergi, þar er málað gólf og opnanlegur gluggi.
Sér geymsla í kjallara er skráð 8 m² að stærð.
Annað:- Nýjir gluggar, gler og svalahurð (2022)
- Nýlegt mynddyrasímakerfi er í stigaganginum.
- Gott útsýni er úr íbúðinni.
- Stutt er í leik- og grunnskóla sem og verslunarkjarna við Norðurtorg.
- Vel nýtt sameign í kjallara, þar er:
- Sameiginlegt rými sem í dag nýtist sem aðstaða fyrir líkamsrækt og leikherbergi.
- Hjóla og vagna geymsla.
- Þurrkherbergi.
- Sér geymsla fyrir dekk.
Nánari upplýsingar veitir:
Gunnar Aðalgeir Arason í síma 618-7325 eða á gunnar@kaupa.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Hvammur skorar því á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.