Fasteignaleitin
Skráð 2. okt. 2026

Ástún 14

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-200
93.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
77.900.000 kr.
Fermetraverð
836.735 kr./m2
Brunabótamat
57.100.000 kr.
Byggt 1980
2. hæð
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
20586961
Húsgerð
Fjölbýlishús
Inngangur
Sameiginlegur

Aldir Fasteignir og Freyja Rúnarsdóttir Löggiltur fasteignasali (s: 694 4112 / freyja@aldirfasteignir.is) og félagsmaður í Félagi fasteignasala kynna í einkasölu:

Virkilega falleg og vel skipulögð 4ra herbergja endaíbúð á 2. hæð með tvennum svölum í fallegu fjölbýlishúsi við Ástún 14 í Kópavogi. Framkvæmdum er nýlokið á húsinu að utan, helstu verkþættir eru múr- og steinsteypuviðgerðir, endurnýjun ónýtra glugga og hurða, endurnýjun á þaki, rennum og niðurfallsrörum og málun og filtun svala. Íbúðin hefur verið mikið endurnýjuð að innan t.a.m var baðherbergi og eldhúsið endurnýjað fyrir nokkrum árum síðan. Árið 2020 voru skápar endurnýjaðir í forstofu, svefnherbergjum og á baðherbergi. Árið 2022 var skipt um alla ofna nema einn og dyrasímar endurnýjaðir. Innihurðir hafa verið endurnýjaðar ásamt glugga í eldhúsi. 
 
Birt stærð skv. HMS: Íbúðin er 93,1 fm., merk: 02-02. Geymslan er ekki skráð í heildarfermetrana og er hún um 7 fm og mætti því líta á að eignina sé um 100 fm með geymslu.  

Nánari lýsing eignar: Komið er inn í anddyri / forstofu með rúmgóðum fataskáp. Innaf anddyrinu / forstofunni er herbergi með fataskáp. Frá forstofunni / anddyrinu tekur við parketlagður gangur og á hægri hönd er þvottahús með innréttingu og glugga. Flíslagt baðherbergi í hólf og gólf, walk-in sturta, neðri skápur, upphengt salerni, handklæðaofn og gluggi. Falleg ljós innrétting í eldhúsi með nýlegum eldhústækjum, rúmgóður borðkrókur. Björt og rúmgóð stofa og borðstofa með útgangi út á svalir með glæsilegu útsýni. Tvö svefnherbergi til viðbótar og er fataskápur í báðum herbergjum. Frá hjónaherbergi er unnt að ganga út á svalir. Gólfefni íbúðar: parket og flísar á gólfum. Eigninni fylgir sérgeymsla í sameign ásamt aðgengi að sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu. Sérmerkt bílastæði á lóðinni. Húsfélagið á tvær íbúðir sem eru í útleigu og renna leigutekjurnar í hússjóðinn. 

Virkilega góð staðsetning á grónum stað þar sem stutt er í alla helstu þjónustu eins og leik- og grunnskóla, verslanir ásamt fallegu útivistasvæði í Fossvogsdalnum.

Allar nánari upplýsingar veitir og bókun á skoðunartíma: Freyja Rúnarsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 690 3111 eða freyja@aldirfasteignir.is
 


Aldir Fasteignir er ný fasteignasala sem varð til við samruna tveggja rótgróinna fyrirtækja, Heimilis fasteignasölu og Landmark fasteignamiðlunar. Með sameiningunni koma saman áratuga reynsla, víðtæk þekking og öflugur hópur fasteignasala sem saman myndar stóra og sterkari heild – allt með það að markmiði að veita viðskiptavinum okkar enn betri og persónulegri þjónustu.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Heimili fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1.Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar í samræmi við gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda er kr. 79.900. 
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af endanlegu brunabótamáti, þegar það er lagt á af viðkomandi sveitarfélagi.
 
Aldri Fasteignir - við leiðum þig heim.
Hlíðasmára 14, 201 Kópavogur.  Opið frá kl. 9-16, mánudaga til föstudaga. 

Upplýsingar um starfsfólk má finna á heimasíðu Aldir Fasteignir og á Facebook.

Engin gögn fundust fyrir þessa eign
Aldir fasteignir
https://aldirfasteignir.is

Myndir (31)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Skólatröð 6
Bílastæði
Skoða eignina Skólatröð 6
Skólatröð 6
200 Kópavogur
110.2 m2
Fjölbýlishús
413
997 þ.kr./m2
109.900.000 kr.
Skoða eignina Lindargata 37
Bílastæði
Skoða eignina Lindargata 37
Lindargata 37
101 Reykjavík
94.5 m2
Fjölbýlishús
312
1110 þ.kr./m2
104.900.000 kr.
Skoða eignina Langahlíð 21
Skoða eignina Langahlíð 21
Langahlíð 21
105 Reykjavík
81 m2
Fjölbýlishús
311
846 þ.kr./m2
68.500.000 kr.
Skoða eignina Óðinsgata 21
Skoða eignina Óðinsgata 21
Óðinsgata 21
101 Reykjavík
100.1 m2
Hæð
422
889 þ.kr./m2
89.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin