Fasteignaleitin
Opið hús:19. maí kl 17:30-18:00
Skráð 13. maí 2026

Þingholtsstræti 12

Tví/Þrí/FjórbýliHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Miðborg-101
113.7 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
74.900.000 kr.
Fermetraverð
658.751 kr./m2
Fasteignamat
74.550.000 kr.
Brunabótamat
47.250.000 kr.
Mynd af Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir
Garður
Sérinng.
Fasteignanúmer
2005631
Landnúmer
101672
Húsgerð
Tví/Þrí/Fjórbýli
Byggingarefni
Timbur
Númer hæðar
01
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Að sögn seljanda í lagi
Raflagnir
Að sögn seljanda í lagi
Frárennslislagnir
Ástand ekki vitað
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Að sögn seljanda í lagi
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Nei
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sérinngangur
Gallar
Lekið hefur í verstu veðrum í forstofu. 
Falleg og bjarta 3ja herbergja neðri hæð með sérinngangi auk kjallara í fallegu tvíbýlishúsi við Þinholtsstræti í hjarta miðborginnar. 

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 113,7 fm. og þar af er kjallararými 43,6 fm. 


Eignin skiptist þannig að á 1.hæð er stofa, eldhús, baðherbergi, hjónaherbergi, forstofuherbergi og forstofa. Í  kjallara er sérinngangur en rýmið nýtist sem geymsla og er malargólf og klöpp inn í rýminu.  Góður garður til vesturs.

Nánari lýsing eignar
Forstofa rúmgóð og björt með gólfhita og flísum á gólfi.
Baðherbergi hefur verið uppgert með sturtuklefa, glugga, snyrtileg innrétting og flísar á gólfi. 
Eldhús er bjart og er með góðum borðkrók, snyrtileg eldhúsinnrétting, tengi fyrir þvottavél inn í innréttingunni og fallegur hleðslusteinn á vegg. Viðarfjalir á gólfi. Inn af eldhúsi er innangengt í sameign og þaðan í herbergi íbúðarinnar.  
Stofa er björt og rúmgóð með parketi á gólfi. 
Svefnherbergi með innangengt inn í fataherbergi með parketi á gólfi. 
Herbergi rúmgott með dúk á gólfi. Innangengt er í herbergið bæði innan íbúðar eða í gegnum sameign. 
Kjallari með sérinngang á bakhlið hússins, með rafmagni og upphitað. Á gólfi er möl og klöpp. 

Húsið hefur fengið gott við hald í gegnum árin. 

*Kjallarinn er hlaðinn úr grágrýti. Húsið er bindingsverkshús, með burðargrind úr timbri og múrsteinshleðslu á milli      bjálkanna. Það var hannað og byggt af Helga Helgasyni forsmið og ber skýr höfundareinkenni hans.
*Raflagnir í góðu ásigkomulagi. Um 2006  var sett upp ný greinitafla og lagnir endurnýjaðar. 
*Þakjárn í góðu standi, skipt um járn á vesturhelmingnum 2007 og annað járn yfirfarið, skipt um allar þakrennur og   niðurföll.
*Settar upp nýjar vindskeiðar í upprunalegri mynd 2008.
*Viðbygging (anddyri með svölum yfir fyrir íbúð efri hæðar) var reist 2010, arkitekt Jon Nordsteien. Húsið hlaut     viðurkenningu Reykjavíkurborgar árið 2012 fyrir vel heppnaðar endurbætur.
*Ofnalagnir í góðu lagi. Ný lagnagrind sett upp í kjallara árið 2020. 
*Gólfhitakerfi og ný flísalögn á anddyri og baði 2024. 

Frábær staðsetning í hjarta miðbæjarins þar sem stutt er í alla helstu þjónustu.

Allar nánari upplýsingar veitir Guðbjörg G. Sveinbjörnsdóttir löggiltur fasteignasali í síma 8995949 eða á netfanginu gudbjorg@trausti.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
05/02/200716.430.000 kr.19.250.000 kr.57.6 m2334.201 kr.
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (25)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Burknavellir 17c
Opið hús:17. maí kl 12:00-12:30
Skoða eignina Burknavellir 17c
Burknavellir 17c
221 Hafnarfjörður
110.9 m2
Fjölbýlishús
423
766 þ.kr./m2
84.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurvangur 2
Skoða eignina Suðurvangur 2
Suðurvangur 2
220 Hafnarfjörður
118.5 m2
Fjölbýlishús
413
654 þ.kr./m2
77.500.000 kr.
Skoða eignina Efra-Sel Home
Bílskúr
Skoða eignina Efra-Sel Home
Efra-sel Home
846 Flúðir
144.5 m2
Einbýlishús
423
477 þ.kr./m2
68.900.000 kr.
Skoða eignina Engjavegur 31
Skoða eignina Engjavegur 31
Engjavegur 31
400 Ísafjörður
192.4 m2
Tví/Þrí/Fjórbýli
614
374 þ.kr./m2
72.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin