Valborg ehf kynnir eignina Hestamýri 1A, 225 Garðabær, nánar tiltekið íbúð 0103, 3ja herb mjög fallega íbúð á jarðhæð með glæsilegu útsýni yfir Bessastaði og Esjuna í nýlegu 12 íbúða fjölbýli. Húsið er byggt árið 2024.
Enda íbúð, mjög vel staðsett á jarðhæð. Íbúðin er samtals 164,2fm. Þar af geymsla 25,8fm - Bílskúr 22,5fm og stæði í bílageymslu að auki. Gólfsíðir gluggar sem gera íbúðina mjög bjarta og hiti í öllum gólfum. Parket á öllum rýmum nema votrýmum í íbúðinni, þar eru vandaðar flísar. Extra breitt og þægilegt bílastæði í bílageymslu fyrir aftan bílskúr og geymslu, Hleðslustöð fylgir. Extra lofthæð í geymslu, mögulegt að setja upp gólfhermi. Stór hjólageymsla beint fyrir neðan íbúð. Góð bílastæði við húsið með hleðslu stöðvum. Stutt í alla þjónustu, skóla, sundlaug og fallegar gönguleiðir.
Opið hús verður í eigninni mánudaginn 14.09. kl. 17:00-17:30
Nánari upplýsingar veitir Elvar Guðjónsson viðskfr og lögg. fasteignasali, í síma 8954000, tölvupóstur elvar@valborgfs.is.
Nánari lýsing:
Tvö rúmgóð svefnherbergi með skápum.
Góðir fataskápar í forstofu.
Stór og björt stofa með flæði inn í eldhúsið (eitt rými). Opnun út á báða palla úr rýminu.
Mjög vandaðar innréttingar gott skápapláss alveg upp í loft í eldhúsi.
Auka lofthæð er í allri íbúðinni um 2.70m
2 baðherbergi, bæði með sturtu og innréttingum.
Sér þvottahús með innréttingum og góðu skápaplássi.
Fullkomið loftskipti kerfi í öllum rýmum íbúðar.
Nýleg Samsung þvottavél og þurkari fylgja
Öll ljós og gardínur fylgja ásamt eldhús tækjum.
Nýtt Ísold hillukerfi í geymslu fylgir sem eru á 3 vegu
Tvennir pallar Suður/Austur og Norður/Vestur (möguleiki á að loka báðum með gleri).
Einstakt útsýni yfir Bessastaði, höfuðborgina og fallegt sjávarútsýni. Tvær hæðir, 6 íbúðir í stigagangi, næg bílastæði.
Eignin Hestamýri 1A er skráð sem hér segir hjá FMR: Eign 253-2120, birt stærð 164.2 fm.
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.