Trausti fasteignasala og Viktoría Larsen löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu virkilega fallega og rúmgóða 2ja herbergja íbúð á 2.hæð að Eyravegi 48, 800 Selfossi. Íbúðin skiptist í forstofu, herbergi, baðherbergi, stofu, eldhús og þvottaherbergi. Harðparket á gólfum og flísar á forstofu, baði og þvottaherbergi. Eignin er í lyftuhúsi með sérinngangi af sameiginlegum svölum.
***BÓKIÐ SKOÐUN***Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 71,9 fm. og þar af er geymsla skráð 6 fm.
Nánari lýsing.Forstofa með hurð inn í íbúðarými, fataskápur upp í loft, flísar á gólfi.
Hjónaherbergi er rúmgott með góðum fataskápum upp í loft, parket á gólfi.
Eldhús er opið við stofu með ljósri viðarinnréttingu, parket á gólfi.
Stofa og eldhús mynda eitt alrými, parket á gólfi. Útgangur er út á suðvestur svalir með útsýni.
Baðherbergi er með innréttingu, upphengdu salerni og baðkari með sturtu aðstöðu, flísar á gólfi.
Þvottahús er innan íbúðar með innangengt frá baðherbergi, skolvaskur og borð, flísar á gólfi.
Geymsla íbúðar er í sameign á jarðhæð hússins.
Húsið er álklætt að utan með viðarklæðningu að hluta og næg bílastæði eru á lóðinni. Grasfletir eru að aftan og til hliðar.
Sameiginleg vagna og hjólageymsla í sameign.
Vel skipulögð eign í góðu hverfi þar sem stutt er í skóla, leikskóla, verslun og þjónustu.
Allar nánari upplýsingar um eignina veita:
Viktoría R. Larsen, Löggiltur fasteignasali í síma 618-5741 eða á netfanginu viktoria@trausti.is