Fasteignaleitin
Opið hús:20. júlí kl 17:00-17:30
Skráð 17. júlí 2026

Hátún 6B

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
106.5 m2
3 Herb.
2 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
86.300.000 kr.
Fermetraverð
810.329 kr./m2
Fasteignamat
85.400.000 kr.
Brunabótamat
57.150.000 kr.
Mynd af Þyrí Guðjónsdóttir
Þyrí Guðjónsdóttir
Viðskiptafræðingur - löggiltur fasteignasali
valborgfs.isEignalisti
Byggt 1990
4. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2010280
Landnúmer
102970
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
04
Hæðir í húsi
4
Hæðir í íbúð
4
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Ekki vitað
Raflagnir
Ekki vitað
Frárennslislagnir
Ekki vitað
Gluggar / Gler
Ekki vitað
Þak
Ekki vitað
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Sameiginlegur
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Ástandsskýrsla unnin af Vernd & Viðhald, 5. maí 2025
Gallar
Rispur í parketi í hjónaherbergi.
Kvöð / kvaðir
Kvaðir eru um aõgengi eiganda eigna 0101 og 0102 um aðgengi að að rafmagnstöflu, símatengiboxi og mælagrind hússins sem er í hjóla- og vagnageymslu hússins (0116) og hafa þeir lykil að rýminu. Þriggja metra kvöð er með norðurlóðamörkum við Hátún, fyrir leiðslur OR og um 5 m breiða ræmu með austurlóðamörkum fyrir umferð og jarðstrengi að spennistöð OR og kvöð um gröft lagna að borholu OR. Kvöð um 8 bílastæði undir leiksvæði barna í suðausturhorni lóðar.
Valborg - fast. og ráðgj. ehf kynnir í einkasölu bjarta 3ja herbergja íbúð á 4. hæð við Hátún 6B, 105 Reykjavík, nánar tiltekið eign merkt 030401, fastanúmer 201-0280 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi. Eignin telur anddyri, eldhús, opið rými sem rúmar stofu og borðstofu, svefnherbergisgang þar sem eru barnaherbergi, hjónaherbergi, baðherbergi og þvottahús.
Birt stærð eignarinnar er 106,5 m², íbúð er 99,9 m² ásamt geymslu 6,6 m²
 á jarðhæð.

Nánari lýsing:
Anddyri: Fataskápar og stór spegill með ljósum fyrir ofan. Flísar á gólfi.
Eldhús: Rúmgott og bjart með eikarinnréttingu og flísum á milli skápa. Bakaraofn í vinnuhæð. Gas- og keramik helluborð. Nýleg simens uppþvottavél sem fylgir. Góður borðkrókur við glugga. Parket á gólfi.
Stofa/borðstofa: Opið rými sem rúmar stofu og borðstofu. Góðir gluggar með útsýni. Svalir sem snúa í suðaustur. Parket á gólfi.
Svefnherbergi I: Gott barnaherbergi með parketi á gólfi.
Svefnherbergi II: Rúmgott hjónaherbergi með stórum skápum með spegli. Parket á gólfi.
Baðherbergi: Hvít innrétting með góðu hillu- og skápaplássi. Baðkar með sturtu. Flísalagt í hólf og gólf.
Þvottahús: Gott þvottahús með innréttingu fyrir þvottavél og þurrkara. Vinnuborð með skolvaski og hillur. Flísar á gólfi.
Geymsla: Hillur og gólf lakkað.
Sameign:  Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla.

Eignin Hátún 6B er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign merkt 030401, fnr. 201-0280, birt stærð 106.5 m², íbúð er 99,9 m² og geymsla er 6,6 m².

Eignin er mjög vel staðsett í grónu hverfi, öll helsta þjónusta í göngufæri. Almenningssamgöngur eru í góðu aðgengi og stutt á allar stofnbrautir. 

Nánari upplýsingar veitir:
Þyrí Guðjónsdóttir, viðskfr. og löggiltur fasteignasali, í síma 891 9867, tölvupóstur thyri@valborgfs.is.


Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.  Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Valborg ehf. fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
5. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
 
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (35)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Álfheimar 25
Opið hús:21. júlí kl 17:00-17:30
Skoða eignina Álfheimar 25
Álfheimar 25
104 Reykjavík
93.1 m2
Hæð
312
837 þ.kr./m2
77.900.000 kr.
Skoða eignina Dugguvogur 1- íbúð 601 Þaksvalir
Bílastæði
Efsta hæð
Dugguvogur 1- íbúð 601 Þaksvalir
104 Reykjavík
101.6 m2
Fjölbýlishús
312
1131 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Skoða eignina Ingólfsstræti 16
Efsta hæð
Ingólfsstræti 16
101 Reykjavík
120 m2
Hæð
513
1083 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Stefnisvogur 34
Bílastæði
Skoða eignina Stefnisvogur 34
Stefnisvogur 34
104 Reykjavík
111.6 m2
Fjölbýlishús
312
850 þ.kr./m2
94.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin