Fasteignaleitin
Opið hús:25. okt. kl 15:00-15:30
Skráð 21. okt. 2026

Bogahlíð 16

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Austurbær-105
104.1 m2
4 Herb.
3 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
75.500.000 kr.
Fermetraverð
725.264 kr./m2
Fasteignamat
77.550.000 kr.
Brunabótamat
53.550.000 kr.
Byggt 1958
3. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2031313
Landnúmer
107250
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
02
Vatnslagnir
Endurnýjað að hluta
Raflagnir
Endurnýjað að hluta
Frárennslislagnir
Endurnýjað að hluta
Gluggar / Gler
Gluggar og gler þurfa endurnýjunar við fyrir utan gluggann í stofunni sem var endurnýjaður f. nokkrum árum.
Þak
Endurnýjað að hluta
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
1
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Fyrirhugaðar framkvæmdir
Stjórn er að vinna að tilboðsgögnum í drenlögn við húsið og hugsanlegri lausn á sorpmálum.
Engin framkvæmd samþykkt.
Gallar
Tími er kominn á endurnýjun á gleri og gluggum í íbúðinni fyrir utan stofugluggann sem var endurnýjaður fyrir nokkrum árum.
VILBORG GUNNARS. lögg.fast. og VALHÖLL KYNNA:
EINKAR NOTALEGA OG VEL SKIPULAGÐA  3-4RA HERBERGJA ÍBÚÐ Í BOGAHLÍÐ 16,
Á 3. HÆÐ FJÖLBÝLISHÚSI - ÍBÚÐINNI FYLGIR AUKAHERBERGI Í KJALLARA SEM ER TILVALIÐ TIL ÚTLEIGU.
HÆGT ER AÐ ÚTBÚA 3ja SVEFNHERBERGIÐ Í HLUTA STOFUNNAR.  
 
 ***Íbúðin er öll nýmáluð***
Samkv. HMS skiptist eignin í 89,1fm íbúð, herbergi í kjallara 12,9fm og geymslu 2,1 fm.  Samtals 104,1fm.


Íbúðinni fylgir herbergi í sameign hentugt til útleigu. Það er með aðgangi að sameiginlegri sturtu og salerni.

Komið er inn í íbúðina inn á flísalagða forstofu með fatahengi, til hægri er gengið inní eldhúsið vinstra megin er baðherbergið. Gangur tengir saman stofu og svefnherbergi.  
Stofan er innar á ganginum til vinstri - við enda gangs í íbúð er geymslurými og herbergin eru til hægri, norðan megin í íbúðinni.    

Nánari lýsing:
Stofa er stór með viðarparketi þaðan útgengt á svalir sem snúa til suðurs. Í stofunni væri hægt að útbúa þriðja svefnherbergið.
Eldhúsið er með gólfdúk á gólfi.  Hvít eldhúsinnrétting, Lagt fyrir uppþvottavél.  Möguleiki að tengja þvottavél og þurrkara í eldhúsinnréttingu.
Baðherbergi  með baðkari, upphengdu salerni, speglaskáp og handklæðaskáp. Flísar á veggum og gólfi.  Gluggi með opnanlegu fagi.
Hjónaherbergið er rúmgott með innbyggðum skápum. Gólfdúkur er á gólfi.
Barnaherbergið er rúmgott með gólfdúk á gólfi.
Gangurinn er með viðarparketi.
Herbergi í sameign: Í sameign er 12,9 fm herbergi  með aðgang að sameiginlegri sturtu og salerni og er hægt að leigja það út.
Sérgeymslur íbúðar: Köld geymsla og geymsluskápur.
Þvottahús er smeiginlegt í sameign með sameiginlegum vélum, og sameiginleg hjólageymsla og dekkjageymsla. 
Vel er gengið um sameignina og lítur hún vel út.

Í stigaganginum eru 6 ibúðir.  

Árin 2019-2020 húsið var húsið múrviðgert og málað ásamt málun á þaki og þakkanti að sögn seljanda.
Að hans sögn var frárennsli var fóðrað 2013 og skipt um dren töluvert fyrr. Búið er að skipta um aðalrafmagnstöflu stigagangsins. Sameign lítur mjög vel út.

Bogahlíð 12-18 er þriggja hæða, fjögurra stigahúsa fjölbýlishús með kjallara. Í kjallaranum eru í séreign geymslur íbúðanna en allt annað rými er í sameign alls hússins, þvottahús, dekkjageymsla, hjóla/vagnageymslur, sorpgeymslur, tvær geymslur og allir gangar og stigahús. Á hverri hæð í öllum stigahúsunum eru tvær íbúðir, samtals eru því 24 íbúðir í húsinu. 

Stutt er í alla þjónustu og skóla.  Leikskóli, grunnskóli og framhaldsskólar eru í göngufærin. Einnig er skammt í útivistarsvæði við Öskjuhlíð og á Klambratúni Sameign er vel um gengin og eru þar geymslur og þvottahús. Húsið er nýlega viðgert að utan og lítur vel út. Sérmerkt bílastæði fylgir íbúðinni.
Á hluta kynningarmynda af íbúðinni hefur húsgögnum verið bætt inn með tölvutækni til að sýna mögulega nýtingu og innréttingu rýma.

Allar nánari upplýsingar veitir Vilborg Gunnarsdóttir s: 891-8660  vilborg@valholl.is


Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:
Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar.

Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
  •   Nýtt - Eignin er nýbygging.
  •   Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
  •   Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
  •   Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
  •   Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
  • Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
  • Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
  • Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
  • Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
  • Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.
Engin gögn fundust fyrir þessa eign

Myndir (34)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Fellsmúli 18
Efsta hæð
Skoða eignina Fellsmúli 18
Fellsmúli 18
108 Reykjavík
105,4 m2
Fjölbýlishús
413
616 þ.kr./m2
64.900.000 kr.
Skoða eignina Stakkholt 2A
Bílastæði
Opið hús:22. okt. kl 17:00-17:30
Skoða eignina Stakkholt 2A
Stakkholt 2A
105 Reykjavík
77,8 m2
Fjölbýlishús
211
970 þ.kr./m2
75.500.000 kr.
Skoða eignina Þórðarsveigur 4
Bílastæði
Þórðarsveigur 4
113 Reykjavík
103,1 m2
Fjölbýlishús
413
775 þ.kr./m2
79.900.000 kr.
Skoða eignina Suðurgata 12
Efsta hæð
Skoða eignina Suðurgata 12
Suðurgata 12
245 Sandgerði
120 m2
Fjölbýlishús
614
Fasteignamat 44.200.000 kr.
Tilboð
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin