RE/MAX, Guðlaug Jóna lgf. og Garðar Hólm lgf. kynna: Einstaklega vandaða og fallega 97,3 fm 4ra herberja íbúð á 2. hæð, með stæði í bilakjallara við Hlíðarenda í Reykjavík. Mikið er lagt í íbúðina og eru innréttingar frá JKE desing, heimilistæki frá Mile og hússtjórnunarkerfið er Free@home. Íbúðin er laus til afhendingar.
Íbúðin er 97,3 fm og þar af geymsla 7,4 fm og bílastæði (merkt:B30). 6,0 fm svalir í suður.
Allar nánari upplýsingar veita: Guðlaug Jóna lgf. í síma 661-2363 eða gulla@remax.is og Garðar Hólm lgf. í síma 899-8811 eða gardar@remax.is
LÝSING:Forstofa: Fataskápur og harðparket á gólfi.
Eldhús: Innréttingar frá JKE design dökkar að lit með ljósri quartz borðplötu. Eldhústæki eru að gerðinni Miele og fylgir bæði uppþvottavél og ísskápur.
Stofa/borðstofa: Eru með harðparketi á gólfi. Gólfsíðir gluggar til suður og er þaðan gengið á 6.0 fm svalir. Auðvelt er að breyta stofunni þannig að útbúið sé auka herbergi og eignin þannig orðin 4ra herbergja.
Baðherbergi: Er flísalagt á gólfi og hluta af veggjum með fallegum gráum flísum. Dökk innrétting með ljósri quatrz plötu og vaskskál ofan á. Walk-in sturta og rými fyrir þvottavél og þurkkara.
Hjónaherbergi: Er með harðparketi á gólfi og veglegum fastaskápum.
Herbergi II&III: Er með harðparketi á gólfi og fataskáp.
Stæði/geymsla: Stæði er í bílageymslu merkt B59 og geymsla í sameign er 7,4 fm.
Lóð: Lóðin er afar fallegt og mikið lagt í hönnun hennar. Stígar eru um inngarðinn og leiktæki fyrir börn.
HÖNNUÐIR: Húsin eru hönnuð af Alark Arkitektum og innanhúshönnun er af M/Studio Reykjavík. Mikill fjölbreytileiki er bæði á ytra útliti húsinss og í gerðum og stærðum á íbúðum. Mikið var lagt upp úr gæða efnisvali og góðum lausnum.
HÚSIÐ: Húsið er klætt að utan með álklæðningu og því viðhaldslítið. Gluggarnir eru vandaðir danskir ál-tré gluggar frá Velfac sem hafa það einkenni að vera með hátt einangrunargildi fyrir hita og hljóði.
ÍBÚÐIR: Aukin lofthæð í öllum íbúðum, 280 cm og gólfsíðir gluggar. Vandaðar Innréttingar frá danska fyrirtækinu JKE design. Quartz borðplötur í eldhúsi og á baðherbergi frá Granítsmiðjunni. Lýsing epr hönnuð af Lumex. Rafmagnstæki eru frá Miele. Blöndunar- og hreinlætistæki frá Tengi.
Íbúðirnar afhendast án megingólfefna en á baðherbergi og þvottahúsi eru vandaðar ljósar flísar.
SAMEIGINLEGUR GARÐUR: Einstaklega fallegur og skjólgóður. Gróður og hellulagðir/steyptir gangstígar sem að hluta til eru með snjóbræðslu ásamt lýsingu. Bekkir og leiksvæði með leiktækjum og mjúku undirlagi.