** HÉR GETUR ÞÚ BÓKAÐ SKOÐUN Á EIGNINA ** Þórdís Björk Davíðsdóttur löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna:Nýleg og falleg 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í góðu fjölbýli í Úlfarsárdal með sérmerkt stæði í lokaðri bílageymslu með rafhleðslustöð.
Mikil lofthæð er í íbúðinni og einstaklega fallegt og mikið útsýni úr almennt öllum rýmum íbúðar. Eignin er staðsett í vinsælu og grónu fjölskylduvænu hverfi þar sem stutt er í grunn- og leikskóla, íþróttasvæði FRAM, sund, bókasafnið og fallegar gönguleiðir um dalinn.
Samkvæmt skráningu HMS er birt flatarmál eignarinnar 90,2 fm, þar af er sérgeymsla íbúðar innan íbúðar með glugga í fullri stærð og getur því nýst sem herbergergi. ** Einn eigandi frá upphafi **SMELLTU HÉR og þú færð SÖLUYFIRLIT sent til þín samstundis SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - Með húsgögnum
SMELLTU HÉR - skoða eignina í - 3D - ÁN húsgagnaÍbúðin skiptist í tvö svefnherbergi, baðherbergi, geymslu innan íbúðar með glugga í fullri stærð, opið eldhús-, stofu- og borðstofurými og forstofu/anddyri.
Nánari lýsing eignar:Forstofa / anddyri: Rúmgóð forstofa með góðum fataskápum og parketi á gólfi.
Eldhús, stofa og borðstofa eru í opnu og björtu samliggjandi rými með gluggum til þriggja átta sem gefa eigninni einstaklega góða birtu. Útgengt er úr stofunni á góðar ÚTSÝNIS_suður svalir sem eru undir allri íbúðinni bæði sunnan og að mestu austan megin.
Eldhúsið er með ljósri innréttingu, góðu skápaplássi og tengi fyrir uppþvottavél. Gluggi til loftunar er í eldhúsi.
Rúmgott
baðherbergi með walk-in sturtu, upphengdu salerni, innréttingu undir handlaug og á móti sturtunni.
Þvottahús er inn af baðherberginu og er hvít innrétting með góðu skápaplássi á móts við þvottavél og þurrkara. Gluggi er á baðherberginu sem tryggir góða loftræstingu. Flísar eru á gólfi og hluta veggja.
Svefnherbergin eru tvö - möguleiki á þriðja herbergi.
Herbergi I - Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Þrír gluggar í tvær áttir og því góð birt og útsýni.
Herbergi II - Barnaherbergi: Rúmgott herbergi með góðu skápaplássi og parketi á gólfi. Stór gluggi sem tryggir góða birtu og útsýni.
Sérgeymsla eignarinnar / Herbergi III er innan íbúðar sem er með parketi á gólfi og glugga í fullri stærð, sem gerir hana vel nothæfa sem þriðja herbergi.
Sérmerkt bílastæði í lokaðri bílageymslu og er leigð rafhleðslustöð frá N1 í bílastæðinu.
Sameignin er öll hin snyrtilegasta, geymslur merktar og einnig er rúmgóð hjóla-og vagnageymsla.
Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Þórdís Björk löggiltur fasteigna- og skipasali s: 862-1914 á milli kl. 10 og 18 alla virka daga eða á netfangið thordis@remax.isUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill því RE/MAX skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef með þarf.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
- Vegna mikillar eftirspurnar vantar allar tegundir eigna á skrá.
- Ertu í söluhugleiðingum? Smelltu HÉR til að fá frítt verðmat.------ Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: · Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% (0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða) og 1,6% (ef lögaðilar)af heildarfasteignamati.
· Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.
· Lántökugjald lánastofnunar - samkvæmt gjaldskrá lánastofnunar.
· Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk