Falleg fjögurra herbergja sérhæð/parhús með bílskúr og sólskála í rólegri botnlangagötu- Vel skipulögð eign með þremur svefnherbergjum
- Endurnýjað eldhús
- Sólskáli (ca. 15 fermetrar, ekki í fermetratölu) með útgengi út í garðNánari upplýsingar veita:Tinna Bryde, A.lgf. | 660-5532 | tinna@palssonfasteignasala.is
Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is
www.verdmat.iswww.eignavakt.is Við kynnum til sölu sjarmerandi og fjölskylduvæna eign í grónu og vinsælu hverfi Efra-BreiðholtsUm er að ræða 140,4 fm fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð með sérinngangi og sérafnotareit að framan. Eignin nýtist eins og endaraðhús og stendur innst í rólegri botnlangagötu við Heiðnaberg. Eignin hentar einstaklega vel fyrir fjölskyldufólk sem vill búa í rólegu umhverfi með góðu aðgengi að leiksvæðum, skóla og náttúru.
Fasteignamat 2026 verður 87.500.000 krNánari lýsing á eigninni:Forstofa: Flísalögð með fatahengi.
Svefnherbergi: Þrjú rúmgóð herbergi með parketi.
Baðherbergi: Flísalagt með glugga, sturtuklefa og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Möguleiki á að loka af þvottahús.
Eldhús: Með góðri innréttingu, quartz borðplötu og vel búið tækjum. Innbyggð uppþvottavél, ísskáp í innréttingu, ofn í vinnuhæð, innbyggður örbylgjuofn og span helluborð. Parket á gólfi.
Stofa og borðstofa: Með parketi á gólfi og útgengi í sólskála.
Sólskáli: Góður og upphitaður ca. 15 fermetra sólskáli sem stækkar eignina töluvert með bárujárnsþaki og útgengi í garð.
Athuga að stærð skálans er ekki í fermetratölu eignarinnar. Geymsluloft: Gott rými yfir hluta íbúðar.
Bílskúr: 25,2 fm bílskúr með sjálfvirkum hurðaopnara, hita, vatni og rafmagnshleðslustöð.
Endurbætur og viðhald:Yfirstandandi
múr- og sprunguviðgerðir eru á kostnað seljanda.
Skipt um alla
glugga nema í sólskála (2023–2025)
Nýtt paket á gólfi í eldhúsi, stofu og herbergjum (2022)
Eldhús endurnýjað (2022)
Rafmagn endurnýjað, ný rafmagnstafla og nýjir tenglar (2020)
Þak endurnýjað (2019)
Umhverfi og staðsetning Eignin stendur í friðsælu og fjölskylduvænu hverfi í Efra-Breiðholti þar sem stutt er í skóla, leikskóla, sundlaug og íþróttasvæði. Frábær tenging við stofnbrautir og stutt í almenningssamgöngur.
Heiðnaberg liggur í nálægð við Elliðaárdal og önnur vinsæl útivistarsvæði þar sem náttúran og borgin mætast á fallegan hátt. Hér nýtur fjölskyldan ró, nálægðar við alla helstu þjónustu og skjólsælt samfélag í grónu hverfi.