** Opið hús mánudaginn 20. apríl frá kl. 16:30 til 17:00 - Svanþór Einarsson, löggiltur fasteignasali - svanthor@fastmos.is eða 698-8555 - Theodór Emil Karlsson, löggiltur fasteignasali - teddi@fastmos.is eða 690-8040 - Steingrímur Benediktsson, löggiltur fasteignasali - steingrimur@fastmos.is eða 862-9416 **
Fasteignasala Mosfellsbæjar kynnir: Mjög falleg og mikið endurnýjuð 116,1 m2, 4ra herbergja íbúð með fallegu útsýni á efstu hæð (3. hæð) í 3ja hæða fjölbýlishúsi við Þrastarhöfða 6 í Mosfellsbæ. Eignin er skráð 116,1 m2, þar af íbúð 108,5 m2 og geymsla 7,6 m2. Íbúðin skiptist í stofu, borðstofu, eldhús, þrjú svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús, gang og forstofu. Sérgeymsla er í kjallara. Um er að ræða íbúð á vinsælum stað í Mosfellsbæ. Stutt er í Lágafellsskóla, leikskóla, Lágafellssundlaug og World Class, en auk þess er golfvöllur í næsta nágrenni.
Skv. upplýsingum frá seljanda var nýlega: Skipt um parket og flísar á gólfum, baðherbergið endurnýjað, eldhús endurnýjað, settur upp veggur milli herbergja og stofu ásamt því útbúa þar skrifborðsaðstöðu. Einnig er búið að lakka hurðir og fataskápa.Smelltu hér til að fá söluyfirlit sent strax.Nánari lýsing: Forstofa er með fataskápum og flísum á gólfi.
Gangur er með parket á gólfi með fataskáp og skrifborðsaðstöðu.
Stofa/borðstofa er björt með parketi á gólfi. Úr stofu er gengið út á svalir í suðvesturátt.
Eldhús er inn af stofu og með parket á gólfi. Í innréttingu er innbyggður ísskápur, innbyggð uppþvottavél, ofn, helluborð og vaskur. Einnig er innbyggður lítill ísskápur.
Svefnherbergi 1 (hjónaherbergi) er rúmgott með parketi á gólfi og fataskápum.
Svefnherbergi 2 er með parketi á gólfi og fataskáp.
Svefnherbergi 3 er með parket á gólfi.
Baðherbergi er flísalagt í hólf og gólf. Á baði er 'walk in' sturta með innbyggðum blöndunartækjum, handklæðaofn, vegghengt salerni og rúmgóð innrétting.
Þvottahús er innan íbúðar og með flísum á gólfi, skápum og vinnuborði.
Sérgeymsla er í kjallara með hillum sem geta fylgt. Er skráð 7,6 m2.
Sameiginleg hjóla- og vagnageymsla er á jarðhæð.
Verð kr. 93.900.000