Gimli fasteignasala og Elín Urður Hrafnberg kynna: Fimm íbúða fjölbýli í byggingu í Hveragerði. Hér býðst gott tækifæri til fjárfestingar. Húsið er staðsteypt og er á tveimur hæðum með alls fimm íbúðum.
Íbúð 101 - 109fm fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð ásamt sérafnotareit.
Íbúð 102 - 108,1fm fjögurra herbergja íbúð á jarðhæð ásamt sérafnotareit.
Íbúð 201 - 109fm fjögurra herbergja íbúð 2. hæð ásamt svölum.
Íbúð 202 - 70,7fm þriggja herbergja íbúð ásamt svölum.
Íbúð 203 - 108,1 fm fjögurra herbergja íbúð á 2. hæð ásamt svölum.
Nánari upplýsingar veitir: Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, tölvupóstur elin@gimli.is eða gimli@gimli.isÁ jarðhæð eru tvær 4ra herbergja íbúðir, 108,fm1 og 109fm. Staðsteyptur stigi er upp á aðra hæð. Á 2. hæð eru þrjár íbúðir, 4ra herbergja endaíbúðir um 108,1fm og 109fm. Í miðju er 3ja herbergja íbúð 70,7fm. geymslur í sameign á jarðhæð fylgja öllum íbúðum.
Gert er ráð fyrir gólfhiti í íbúðum á jarðhæð, ofnar eru í íbúðum á 2. hæð. Gert ráð fyrir loftræstikerfi sem sér um að endurnýja loftgæðin í húsinu.
Bílastæði eru á lóð fyrir framan húsið. Lóðin tilheyrir íbúðum að jöfnu, fyrir utan sérafnotafleti sem tilheyra íbúðum á 1.hæð. Gert er ráð fyrir tveimur hleðslustaurum á bílastæði.
Húsið er komið á byggingarstig 3. og matsstig 5.
Húsið selst í því ástandi sem það er í dag, langt komið að utan og rúmlega fokhelt að innan. ·
Að utan verður búið að klæða og setja svalahandrið.
· Þakið er steypt og á eftir að ganga frá einangrun, ábræddum pappa og lokafrágangi.
· Búið er að malbika bílaplan
· Búið er að greiða inntak rafmagns og fyrir heitt vatn.
· Að innan eru veggir hlaðnir og allir milliveggir komnir upp, eftir að fræsa lagnir í milliveggi.
Gólfhiti á neðri hæð kominn og ísteyptur, eftir að setja ofanlagnir á efri hæðina.
Ekki búið að tyrfa lóð og það á eftir er að setja hellur fyrir framan hús.
Gert er ráð fyrir tveimur tveimur hleðslustaurum á bílastæðinu.Myndir í auglýsingu eru tölvuteiknaðar.Nánari upplýsingar veitir: Elín Urður Hrafnberg Löggiltur fasteigna- og skipasali, í síma 6902602, tölvupóstur elin@gimli.is eða gimli@gimli.isGimli fasteignasala leggur áherslu á traust, áreiðanleika og góða þjónustu.Það er okkar trú að það skipti öllu máli í fasteignaviðskiptum að viðskiptavinurinn fái trausta og góða þjónustu. Við hjá
Gimli höfum stundað fasteignaviðskipti með farsælum hætti í meira en fjóra áratugi. Hjá okkur starfa sérhæfðir og reyndir fasteignasalar sem sinna stórum sem smáum verkefnum af nákvæmni og þekkingu sem skilar árangri.
Hvar erum við?
Gimli Fasteignasala er staðsett á jarðhæð í Skipholti 35 í Reykjavík en einnig rekum við söluskrifstofu að Eyrarvegi 29. 2 hæð á Selfossi.
Við höfum opið frá 10-15 mánudaga til föstudaga. Sláðu á þráðinn eða líttu við hjá okkur í Skipholtinu næst þegar þú átt leið hjá. Við erum alltaf með heitt á könnunni. sími:
570 4800, tölvupóstur:
gimli@gimli.isGimli gerir betur...
Heimasíða Gimli fasteignasöluGimli á FacebookUm skoðunar- og aðgæsluskyldu kaupenda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Gimli fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand eigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun ef þörf er á.
Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna: Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila. Þinglýsingargjald hvers skjals er kr. 3800,- .Lántökugjald lánastofnunar skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda. Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá. Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamati, þegar það er lagt á.
Teikningar sem fylgja lýsingu eignarinnar og myndum eru til viðmiðunar og ekki alltaf í samræmi við samþykktar teikningar af eigninni.
Myndir í auglýsingu eru í einkaeigu og er notkun þeirra með öllu óheimil án formlegs leyfis fasteignasala