Domusnova fasteignasala og Bergþóra Lárusdóttir lgf. kynna til sölu vel staðsetta rúmgóða 85,3 fm. 2ja. herbergja íbúð merkt 203 með sér inngangi á 2.hæð við Suðurhóla 30, 111 Reykjavík. - Allt að mestu upprunalegt innan íbúðar – frábært tækifæri til endurbóta og persónulegrar útfærslu,
- Geymsla er innan íbúðar sem nýtist vel til daglegra nota.
- Búið að loka svölum og breyta í opna sólstofu sem er ekki inn í birtum fermetrum.
Eignin skiptist í forstofu, stofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.
Nánari lýsing:Forstofa: Komið er í forstofu með fatahengi og gráleitum flísum á gólfi.
Stofa: Björt og opin með stórum gluggum. Búið er að loka svölum og breyta í opna sólstofu sem er ekki inn í birtum fermetrum og ekki samþykkt breyting. Teikning er því ekki í samræmi við núverandi skipulag. Er nýtt í dag sem skrifstofurými.
Eldhús: Með upprunalegri innréttingu og kork á gólfi.
Svefnherbergi: Er með rúmgóðum fataskáp og dúk á gólfi.
Baðherbergi: Á baðherbergi er sturta, ljós innrétting og tengi fyrir þvottavél og þurrkara. Gráleitar flísar á gólfi og vegg í sturtu.
Geymsla: Er inn af forstofu með hillum og glugga.
Sameign: Í sameign er hjóla- og vagnageymsla.
Eignin er mjög vel staðsett þar sem örstutt er í leik-, grunn-, og framhaldsskóla. Einnig er verslun og öll helsta þjónusta innan seilingar.
Nánari upplýsingar veita:Bergþóra Lárusdóttir löggiltur fasteignasali / s.8953868 / bergthora@domusnova.is
Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Forsendur söluyfirlits:Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.
Um ástand einstakra eignarhluta:Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:
Nýtt - Eignin er nýbygging.
Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.
Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.
Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.
Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:- Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
- Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.
- Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
- Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.
- Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.