Fasteignaleitin
Opið hús:18. nóv. kl 17:00-17:30
Skráð 14. nóv. 2026

Glaðheimar 24

FjölbýlishúsHöfuðborgarsvæðið/Reykjavík/Laugardalur-104
121 m2
6 Herb.
4 Svefnh.
1 Baðherb.
Verð
106.900.000 kr.
Fermetraverð
883.471 kr./m2
Fasteignamat
89.400.000 kr.
Brunabótamat
59.850.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 1960
3. hæð · efsta
Garður
Svalir
Sameig. Inng.
Fasteignanúmer
2021896
Landnúmer
105311
Húsgerð
Fjölbýlishús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
03
Hæðir í húsi
3
Hæðir í íbúð
1
Númer íbúðar
01
Vatnslagnir
Endurnýjað
Raflagnir
Endurnýjað
Gluggar / Gler
Tvöfalt gler
Þak
Skipt um þakpappa 2017
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Þaksvalir
Upphitun
Hitaveita
Inngangur
Sameiginlegur
Nýtt á skrá! Glaðheimar 24 í Reykjavík - Glæsileg og mikið endurnýjuð efsta hæð með 3-4 svefnherbergjum, arinstofu og þaksvölum með glæsilegu útsýni.

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir virkilega glæsilega og vel staðsetta 6 herbergja hæð (efsta) með þaksvölum með glæsilegu útsýni í rólegri og barnvænni götu við Glaðheima í Reykjavík. Heildareignin er alls 121,0 fermetrar að stærð auk sameignar. Sérstæði fylgir á lóð.

Hæðin er vel skipulögð með stórum alrýmum (borðstofa og setu/arinstofa) og rúmgóðum svefnherbergjum. Fjögur svefnherbergi eru á hæðinni en möguleiki er að nýta svefnherbergi næst eldhúsi sem þvottaherbergi (einnig er þvottaherbergi í kjallara hússins). Stórir gluggar í stofum austurs, suðurs og vesturs. Útgengi úr arinstofu um rennihurð á rúmgóðar þaksvalir með glæsilegu útsýni.

Hæðin og húsið hefur fengið gott viðhald á undanförnum árum. Árið 2021 var húsið múrviðgert og málað, ásamt því að skipt var um eitthvað af gluggum í húsinu. Búið er að endurnýja mestmegnis af lögnum í húsinu t.a.m. ofnalagnir, neysluvatnslagnir og raflagnir. Sameign var endurnýjuð fyrir 2-3 árum síðan (máluð og skipt um teppi). Þá var þakpappi var endurnýjaður árið 2015.
Auk þess er búið að endurnýja gólfefni íbúðar og baðherbergi.

Lóðin er 668,0 fermetrar að stærð, snyrtileg og sameiginleg. Tyrfður garður til vesturs, suðurs og austurs með fallegum trjágróðri. Vestan megin við hús er stétt að húsi og er snjóbræðsla í útitröppum á inngangi hússins.

Um er að ræða afar fallega hæð á eftirsóttum stað við Glaðheima í Reykjavík. Frábær staðsetning í grónu og fjölskylduvænu hverfi miðsvæðis við Laugardalinn. Stutt er í alla verslun og þjónustu, m.a. Holtagörðum, Glæsibæ, Skeifuna, leikskóla, grunnskóla, sundlaug og heilsurækt. Laugardalurinn og Elliðaárdalur í göngufjarlægð með allri þeirri útivist sem þar er upp á að bjóða.


Nánari lýsing:
Forstofa: Með parketi á gólfi og fatahengi/skáp.
Borðstofa: Er rúmgóð, með parketi á gólfi og glugga til vesturs.
Setustofa/Arinstofa: Með parketi á gólfi, fallegum arni og gluggum til austurs, suðurs og vesturs. Útgengi á þaksvalir um rennihurð.
Þaksvalir: Eru rúmgóðar og með glæsilegu útsýni yfir höfuðborgina, út á sundin og til fjalla.
Eldhús: Með parketi á gólfi og fallegri viðar eldhúsinnréttingu með frístandandi eyju. Flísar á milli skápa og gluggi til norðurs. Stál bakaraofn, spansuðu helluborð, stál háfur og tengi fyrir uppþvottavél.
Baðherbergi: Hefur verið endurnýjað á fallegan máta. Flísar á gólfi og veggjum. Innrétting við vask. Flísalögð sturta með glerþili og innb. Grohe blöndunartækjum. Innb./upphengt salerni og gluggi til austurs.
Hjónaherbergi: Er stórt með parketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs.
Svefnherbergi II: Með parketi á gólfi og glugga til austurs.
Svefnherbergi III: Er stórt, með parketi á gólfi, skápum og glugga til suðurs.
Svefnherbergi IV: Með flísum á gólfi og glugga til norðurs. Möguleiki væri að nýta þetta herbergi sem þvottaherbergi (stendur við hlið eldhúss).

Geymsla: Er staðsett undir útitröppum og fylgir hæðinni. Rafmagn er í geymslu (hiti í útitröppum).
Þvottaherbergi: Er staðsett í kjallara hússins. Sér tenglar fyrir hverja eign og þvottasnúrur.
Hitarými: Er sameiginlegt í kjallara hússins.

Nánari upplýsingar:
Heimir Hallgrímsson, lögg. fasteignasali / heimir@fastlind.is / 849-0672
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
28/03/201429.950.000 kr.32.500.000 kr.121 m2268.595 kr.Já
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2026

Myndir (32)

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Orkureiturinn D1 405
Opið hús:15. nóv. kl 12:00-13:00
Orkureiturinn D1 405
108 Reykjavík
105,4 m2
Fjölbýlishús
222
1138 þ.kr./m2
119.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D1 301
Opið hús:15. nóv. kl 12:00-13:00
Orkureiturinn D1 301
108 Reykjavík
126,9 m2
Fjölbýlishús
312
1024 þ.kr./m2
129.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D1 510
Opið hús:15. nóv. kl 12:00-13:00
Orkureiturinn D1 510
108 Reykjavík
126,5 m2
Fjölbýlishús
423
1185 þ.kr./m2
149.900.000 kr.
Skoða eignina Orkureiturinn D1 411
Opið hús:15. nóv. kl 12:00-13:00
Orkureiturinn D1 411
108 Reykjavík
106,4 m2
Fjölbýlishús
222
1080 þ.kr./m2
114.900.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2026 - Fasteignaleitin