Fasteignaland fasteinalsala kynnir í einkasölu:
Glæsileg og nýlega endurnýjuð 4ra herbergja 118 fm hæð með fallegum afgirtum sólpalli og heitum potti við Eyrarlandsveg 12.
Fallegt útsýni er frá íbúðinni.
Eignin er í þríbýlishúsi og er staðsetningin frábær í göngufæri við miðbæinn, skóla og sundlaugina.
Upplýsingar um eignina veitir Hörður Sverrisson, lgf s 777-5209, hordur@fasteignaland.isNánari lýsing:Inngangur íbúðar er að vestanverðu og þar komið inní sameiginlega forstofu.
Úr forstofu er gengið inn á stigagang og þaðan inn í íbúðina.
Á forstofu íbuðar og gangi eru flísar og parket. Góður skápur í forstofu, gólfhiti. Útgengi út á stóran sólpall sem snýr til suðurs og vesturs.
Baðherbergi hefur verið endurnýjað, flísar á gólfi og innfelld lýsing. Baðkar með sturtutækjum.
Gólfhiti.Stofa er með parketi á gólfi.
Innfelld lýsing.Eldhús, nýlega endurnýjað að mestu leyti, hvít innrétting frá Ikea, parket á gólfi, góð borðaðstaða.
Svefnherbergin eru þrjú ásamt litlu aukaherbergi sem er innaf hjónaherbergi. Í dag notað sem fataherbergi. Parket er á gólfum allra herbergja og fataskápur er í hjónaherbergi og öðru barnaherberginu.
Þvottahús er í litlu rými innaf stigagangi. Vínil parket á gólfi.
Geymslur sem tilheyra íbúðinni eru þrjár í sameign í kjallara.
Annað:
- Mikið endurnýjuð eign,- Endureinaangraðir útveggir og milliveggir
- Gólf styrkt, gólfefni endurnýjuð
- Rafmagn endurnýjað að mestu.
- Þak endurnýjað árið 2020
- Ljósleiðari kominn í íbúð.
- Ofnar og ofnalagnir endurnýjaðar að mestu.