Fasteignaleitin
Opið hús:27. okt. kl 17:00-17:30
Skráð 22. okt. 2025
Deila eign
Deila

Blásalir 4

ParhúsHöfuðborgarsvæðið/Kópavogur-201
232.7 m2
7 Herb.
5 Svefnh.
2 Baðherb.
Verð
173.700.000 kr.
Fermetraverð
746.455 kr./m2
Fasteignamat
150.800.000 kr.
Brunabótamat
110.800.000 kr.
HH
Heimir Hallgrímsson
Löggiltur fasteignasali
Byggt 2001
Þvottahús
Garður
Bílskúr
Tveir Inng.
Fasteignanúmer
2234160
Húsgerð
Parhús
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
1
Hæðir í húsi
2
Hæðir í íbúð
2
Númer íbúðar
1
Vatnslagnir
Frá því að húsið var byggt
Raflagnir
Frá því að húsið var byggt
Frárennslislagnir
Frá því að húsið var byggt
Gluggar / Gler
Frá því að húsið var byggt
Þak
Frá því að húsið var byggt
Lóðarréttindi
Leigulóð
Svalir
Upphitun
Gólfhiti
Inngangur
Tveir inngangar
Matsstig
7 - Fullgerð bygging
Nýtt á skrá! Blásalir 4 Kópavogi / Frábært 5 svefnherbergja fjölskylduhús með fallegu útsýni!

Lind fasteignasala / Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali kynnir virkilega fallegt og frábærlega staðsett 7 herbergja parhús (5 svefnherbergi) á tveimur hæðum við Blásali 4 í Kópavogi. Húsið, sem er byggt árið 2001, er alls 232,7 fermetrar að stærð og þar af 45,5 fermetra innbyggður bílskúr. Húsið er afar sjarmerandi, með aukinni lofthæð og bakgarði til suðvesturs. Svalir snúa inn í bakgarð hússins með glæsilegu útsýni yfir Leirdalinn, að Keili, Trölladyngju og Grænadyngju. Mikil lofthæð gefur stofu og eldhúsi mikinn sjarma. Gólfhiti er í öllu húsinu.

Fimm svefnherbergi eru í húsinu. Gestasnyrting á efri hæð og aðal baðherbergi á neðri hæð. Möguleiki er að koma fyrir auka baðherbergi inn af hjónaherbergi. Eldhús er stúkað af með góðum borðkrók inn af og afar fallegu útsýni til suðvesturs. Stofa/borðstofa er með útgengi á svalir. Mikil lofthæð er yfir aðalhæð með innfelldum ljósum. Innangengt í bílskúr frá forstofu. Þvottaherbergi og geymsla er staðsett á neðri hæð.

Lóðin er tyrfð með hekki á lóðarmörkum fyrir neðan hús og hellulögð stétt með snjóbræðslu fyrir ofan hús. Staðsetning hússins er afar góð í rólegri barnvænni götu (lokuðum botnlanga). Mikil nálægð við skóla, leikskóla, sundlaug, íþróttasvæði og golfvöll. Fallegar göngu- og hjólaleiðir allt í kring. 

Nánari lýsing:
Efri hæð:

Forstofa: Er rúmgóð með flísum á gólfi og góðum skápum. 
Svefnherbergi I: Með parketi á gólfi, skáp og glugga til austurs. 
Baðherbergi I (gestasnyrting): Með flísum á gólfi, innréttingu við vask, upphengdu salerni og glugga til norðausturs.
Eldhús: Með parketi á gólfi og hvítri eldhúsinnréttingu. Stór gluggi til suðvesturs með fallegu útsýni að Leirdalnum og til fjalla. Tveir stál Gorenje ofnar, Gorenje span helluborð og tengi fyrir uppþvottavél. Aukin lofthæð og innfelld lýsing í loftum. Skemmtilegur og mikið nýttur borðkrókur með glugga til suðurs. 
Stofa: Með parketi á gólfi, mikill lofthæð og gluggum til suðvesturs. Stofa rúmar vel setustofu og borðstofu. Útgengi á svalir til suðvesturs inn í bakgarð hússins.

Bílskúr: Er 45,5 fermetrar að stærð með góðri lofthæð. Inngengt frá forstofu og sér inngangshurð. Málað gólf, geymsluloft yfir hluta og heitt/kalt vatn.

Neðri hæð: Gengið niður á neðri hæð um steyptan teppalagðan stiga.
Sjónvarpsstofa:
Er rúmgott með parketi á gólfi. Þaðan er gengið út á hellulagða stétt og þaðan í bakgarð hússins.
Hjónaherbergi (svefnherbergi II): Er rúmgott, með parketi á gólfi og góðum skápum. Frá hjónaherbergi er gengið inn í gott herbergi sem gæti nýst sem fataherbergi eða auka baðherbergi.
Fataherbergi/Baðherbergi: Er staðsett inn af hjónaherbergi með parketi á gólfi. Möguleiki er að nýta sem rúmgott fataherbergi eða breyta í auka baðherbergi þar sem allar lagnir eru til staðar til þess.
Baðherbergi II: Með flísum á gólfum og veggjum. Baðkar með innb. sturtutækjum. Lagnir til staðar fyrir sturtu. Innrétting við vask, upphengt salerni og handklæðaofn.
Þvottaherbergi: Er mjög stórt og er staðsett inn af baðherbergi II. Nýtist sem þvottaherbergi og geymsla. Flísar á gólfi, innrétting við vask, þvottasnúrur og mikið skápapláss. Tengi fyrir þvottavél og þurrkara.
Svefnherbergi III: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til suðausturs.
Svefnherbergi IV: Með parketi á gólfi og gluggum til suðvesturs.
Svefnherbergi V: Með parketi á gólfi, skápum og glugga til suðvesturs.

Allar nánari upplýsingar veitir:
Heimir Hallgrímsson lögg. fasteignasali / 849-0672 / heimir@fastlind.is
DagsetningFasteignamatKaupverðStærðFermetraverðNothæfur samningur
29/08/200639.790.000 kr.45.000.000 kr.232.7 m2193.382 kr.Nei
Byggt á upplýsingum úr Þjóðskrá Íslands frá 2006-2025
Byggt 2001
45.5 m2
Fasteignanúmer
2234160
Byggingarefni
Steypt
Númer hæðar
02
Númer eignar
02
Húsmat
0 kr.
Lóðarmat
0 kr.
Fasteignamat samtals
0 kr.
Brunabótamat
15.350.000 kr.
Matsstig
7 - Fullgerð bygging

Sambærilegar eignir

Skoða eignina Parhús í Smárahverfi
Bílskúr
Parhús í Smárahverfi
201 Kópavogur
236.5 m2
Parhús
816
773 þ.kr./m2
182.900.000 kr.
Skoða eignina Holtagerði 47
Bílskúr
Skoða eignina Holtagerði 47
Holtagerði 47
200 Kópavogur
238.5 m2
Einbýlishús
715
788 þ.kr./m2
187.900.000 kr.
Skoða eignina Goðakór 5
Bílskúr
Skoða eignina Goðakór 5
Goðakór 5
203 Kópavogur
207.7 m2
Einbýlishús
625
818 þ.kr./m2
169.900.000 kr.
Skoða eignina Hamrakór 5
Bílskúr
Skoða eignina Hamrakór 5
Hamrakór 5
203 Kópavogur
254.4 m2
Raðhús
524
680 þ.kr./m2
173.000.000 kr.
Fasteignaleitin
Öflugur fasteignaleitarvefur með einföldu og notendavænu viðmóti sem býður upp á ítarlegar upplýsingar um fasteignir, þróun verðlags og fróðleik um fasteignamarkaðinn.
Hafðu samband
© Copyright 2025 - Fasteignaleitin